Listasmiðja með Kristínu Dóru Ólafsdóttur sem tvinnar saman skrif og teikningu. Í þessari smiðju vinnum við með blek á pappír og gerum þakklætisblóm. Það er hollt fyrir öll að æfa sig í að þakklæti, flæði og núvitund. Hvernig lítur þitt blóm út í dag?
Smiðjan er hluti af listahátíðinni List án landamæra.
Fjölskyldustundir á laugardögum er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Viðburðir eru haldnir á víxl á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Salnum.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.