Skólahópar

Sögustundir fyrir leikskóla hefjast 19. september á Lindasafni og 20. september á aðalsafni

Sögustund á aðalsafni | Miðvikudagar

Á aðalsafni eru sögustundir fyrir leikskóla alla miðvikudaga kl. 10

Vinsamlega skráið hópinn hér.

*Athugið að aðeins er pláss fyrir um 20-50 börn í hverri sögustund. 

Sögustund á Lindasafni | Þriðjudagar

Á Lindasafni eru sögustundir fyrir leikskóla alla þriðjudaga kl. 10

Vinsamlega skráið hópinn hér.

*Athugið að aðeins er pláss fyrir um 20-40 börn í hverri sögustund. 

Sögustund á aðalsafni | Miðvikudagar

Á aðalsafni eru sögustundir fyrir leikskóla alla miðvikudaga kl. 10

Vinsamlega skráið hópinn hér.

*Athugið að aðeins er pláss fyrir um 20-50 börn í hverri sögustund. 

Sögustund á Lindasafni | Þriðjudagar

Á Lindasafni eru sögustundir fyrir leikskóla alla þriðjudaga kl. 10

Vinsamlega skráið hópinn hér.

*Athugið að aðeins er pláss fyrir um 20-40 börn í hverri sögustund. 

Skólaheimsóknir og heimsóknir hópa

Allir hópar eru velkomnir á Bókasafn Kópavogs og áætla má að almennar heimsóknir taki um 30-40 mínútur. Semja má um styttri eða lengri heimsóknir sé þess óskað. 

Mikilvægt er að umsjónarmenn hópa hafi samband og bóki hóp sem er stærri en átta manns áður en komið er í heimsókn svo hægt sé að forðast árekstra. Það getur skapað erfiðar aðstæður fyrir starfsfólk og hópa þegar mjög stórir hópar eru saman. 

Eftirfarandi ábendingar viljum við koma á framfæri til umsjónarmanna:

  • Vinsamlega gefið ykkur fram við starfsfólk þegar þið komið í húsið.
  • Hópnum er bent á að fara úr útifötum í fatahengi á 1. hæð. 
  • Neysla matar er ekki leyfileg í barnadeild. 

Menning fyrir alla

Árlega er 4. og 9. bekk úr grunnskólum Kópavogs boðið í heimsókn á safnið í fræðslu undir hattinum Menning fyrir alla og fenginn er höfundur, eða annað listafólk, til að halda erindi fyrir nemendur. 

Lögð er áhersla á allt sem tengist lestri, læsi, skrifum, bókmenntum, sköpunargáfu og sköpun. Þessi fræðsla er unnin í samvinnu við hin menningarhúsin í Kópavogi.  

Námskeið í meðferð bóka

Hvernig er best að handleika bækur svo tryggt sé að þeirra megi njóta lengi?

Leikskólahópum stendur til boða að sækja námskeið í meðferð bóka á aðalsafni. Þar er rætt við börnin um það hvernig best sé að fara með bækur. 

Námskeiðin er haldin samkvæmt samkomulagi allan veturinn. 

Sumarlestur og 1. bekkur

Fyrsta bekk úr grunnskólum Kópavogs er boðið í skemmtilega fræðsluheimsókn á Bókasafn Kópavogs á vorin, við lok skólaárs. Í heimsókninni er bókasafnið kynnt fyrir nemendum og mikilvægi þess að halda lestri áfram á sumrin til að viðhalda þeirri færni sem áunnist hefur yfir vetrartímann. 

Sumarlestur Bókasafns Kópavogs er skemmtilegt lestrarátak yfir sumarmánuðina fyrir 5-12 ára börn. Þátttaka er ókeypis og öll geta verið með. Vinningar í boði!

Ratleikur

Komdu í ratleik og gerðu bullljóð á bókasafninu, finndu fisk með tennur á Náttúrufræðistofu, skoðaðu listaverk liggjandi á gólfinu á Gerðarsafni, mældu vegalengdina frá Salnum að bókasafninu og skoðaðu form á Kópavogskirkju.

Ratleikurinn er ókeypis og prentuð eintök liggja frammi á Bókasafni Kópavogs, Náttúrufræðistofu, Salnum og Gerðarsafni. Leikurinn er ætlaður allri fjölskyldunni og er einnig til á ensku og pólsku.

Hægt er að fara aftur og aftur í ratleikinn, ekkert eitt svar er rétt.

Aðfangastefna Bókasafns Kópavogs 2022

Nauðsynlegt er fyrir öll bókasöfn að setja fram stefnu um aðföng, þ.e. innkaup, viðhald og grisjun safnkosts.  

Stefnuna skal endurskoða árlega með tilliti til breytinga á fjármagni til innkaupa og þjónustu og gestum hverju sinni. 

Sendu inn innkaupatillögu

Ertu með tillögu hvað á að kaupa inn. Láttu okkur vita.

Aðalsafn

mán-Þri
8-18
1. maí
Lokað
fim-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-Þri
13-18
1. maí
Lokað
fim-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-Þri
8-18
1. maí
Lokað
fim-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-Þri
13-18
1. maí
Lokað
fim-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað
Consent Management Platform by Real Cookie Banner