Bókasafn Kópavogs ýtir sumarlestrinum 2023 úr vör með sumarlestrargleði á aðalsafni. Gunnar Helgason rithöfundur kemur í heimsókn, les úr bókunum sínum og veitir krökkunum lestrarhvatningu fyrir sumarið.
Starfsfólk safnsins aðstoðar einnig lestrarhesta og foreldra við að finna réttu bækurnar til að lesa í sumar.
Viðburðurinn verður haldinn á 1. hæð aðalsafns.
Skráðu þig í sumarlesturinn á sumarlestur.is