23. okt 17:00 – 17:45

Flóra mannlífs | Austræn menning

Aðalsafn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Austræn menning / Session on Estern Cultures

ATH! að erindið fer fram á ensku

Sali Salem Alazzani verður með erindi um austræna menningu og þau austrænu menningarsamfélög sem hafa sest að á Íslandi. Sali starfar sem innflytjenda- og flóttamannasérfræðingur hjá fjölmenningardeild Vinnumálastofnunar. Hún er með meistaragráðu í alþjóðlegum samningarviðræðum á átakasvæðum.

Flóra mannlífsins er erindaröð um ólíka menningarheima á Bókasafni Kópavogs og er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölmenningarlegu samfélagi.

Verkefnið er styrkt af bókasafnasjóði og Nordplus og snýr að því að koma betur til móts við allan þann fjölbreytta hóp fólks sem heimsækir bókasafnið okkar og halda blómlegri fjölmenningu á lofti.

Aðrir viðburðir í viðburðaröðinni Flóra mannlífsins:

Fimmtudaginn 26. september kl. 19.00  –Friðarheimspeki búddismans: Eyrún Ósk Jónsdóttir rithöfundur verður með erindi um friðarheimspeki búddismans en hún er alin upp í búddatrú. ,,Eitt einstakt líf, vegur þyngra en allur alheimurinn.“

Miðvikudagurinn 20. nóvember kl. 17:00 – Ferð í gegnum arfleifð og persónulega uppgötvun: Jasmina Vajzovic deilir sögum frá heimalandi sínu Bosníu og Hersegóvínu, ræðir helgisiði, hátíðahöld og hversdaglegar venjur sem gera menningu hennar einstaka. Fyrirlesturinn gefur innsýn í hefðir, gildi og sögur Bosníu og Hersegóvínu og djúpstæð áhrif þessarar arfleiðar á fyrirlesarann.

Miðvikudaginn 29. janúar – Saga mín: Sigríður Láretta Jónsdóttir ræðir við þrjá innflytjendur og biður þá um að deila sögu sinni. 

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

05
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
06
okt
07
okt
17:00

Félagslegir töfrar

Aðalsafn | 2. hæð
07
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
10
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
10
okt
13:00

ÞYKJÓ blóm á Lindasafni

Lindasafn
12
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
13
okt
22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað