07. okt 17:00 – 19:00

Bjargráð og leiðir gegn einmanaleika

Aðalsafn | 2. hæð

Félag kvenna í Kópavogi og Bókasafn Kópavogs taka höndum saman í viku einmanaleikans og bjóða upp á fræðslu, skemmtun og spjall þann 7. október kl. 17 – 19.

Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika.

Verkefninu er ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar,
hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu gegn einmanaleika. (Tekið af www.vikaeinmanaleikans.is)

Við hvetjum öll til að kíkja við og sækja sér fræðslu og skemmtun í notalegu andrúmslofti.

Frítt inn og öll velkomin.

Dagskrá

17-17:15 
Kynning frá Félagi kvenna í Kópavogi 

17:15-18:00
Einmanaleiki ógnvið lífsgæði og heilsu – hvað er til ráða?
Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur hjá Huglind, verður með erindi um mikilvægi félagslegrar heilsu og bjargráð gegn einsemd og tengslaleysi.

18:00-18:10
Samfélagið á bókasafninu 
Eyrún Ósk Jónsdóttir, verkefnastjóri á Bókasafni Kópavogs fer stuttlega yfir samfélagið á bókasafninu, hvaða viðburði og þjónustu hægt er að sækja sér gjaldfrjálst og það fallega samfélag sem þar hefur skapast.

18:10-18:20
Tónlistaratriði
Chris Foster er enskur þjóðlagasöngvari og gítarleikari sem hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 2004. Hann telst til brautryðjenda á sviði enskrar þjóðlagatónlistar þar sem hann setur gömul ensk þjóðlög í nútímalegan búning með sérstæðum, frumlegum gítarleik og hrífandi söngtúlkun.

18:20-19:00
Fáum okkur kaffisopa og blöndum geði 

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
sep
17
sep
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
17
sep
12:15

Tónlistarreisa um Suður-Ameríku

Aðalsafn | ljóðahorn 2. hæð
19
sep
11:00

Get together

Aðalsafn
19
sep
20
sep
11:00

Fjölskyldustund

Aðalsafn | 1. hæð
20
sep
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
22
sep
12:00

Geðræktarvika | Stólajóga

Aðalsafn | Huldustofa 3. hæð
slökunarjóga

Sjá meira

Aðalsafn

mán-mið
8-18
11. sept
Lokað
fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-mið
13-18
11. sept
Lokað
fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-mið
8-18
11. sept
Lokað
fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-mið
13-18
11. sept
Lokað
fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað