Aðdáendaklúbbur Jane Austen á Íslandi boðar til aðventusamveru á Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 3. desember kl. 17.30-19.00.
Fróðleiksmolar:
- Aðventa og jól í lífi Jane Austen: Kristín Linda
- Jólatíminn, matur, leikir og skreytingar: Þorbörg Friðriksdóttir
- Jól í bókum Jane Austen: Sigrún Garðarsdóttir
Ljúf samvera, léttar veitingar og lifandi tónlist. Tækifæri til að klæðast að stíl Jane og setja upp hattana.
Opinn og ókeypis viðburður.
Öll hjartanlega velkomin.











