Bækur

Hvað er Leitir?

Á Leiti getur þú fundið allar okkar bækur og safngögn. Þar getur þú skráð þig inn og tekið gögn frá, endurnýjað útlán og skoðað útlánasöguna þína. 

Leitir.is er leitargátt sem heldur utan um efni íslenskra bókasafna ásamt fleiri safnategunda. Hægt er að finna bækur, tímarit, tímaritsgreinar myndefni og margt fleira.

Endurstilla lykilorð?

Það er hægt að skrá sig inn á leitir.is með kennitölu og lykilorði eða með rafrænum skilríkjum. Til að fá nýtt eða endurstilla lykilorð smellið á hnappinn hér:

Hvernig tek ég frá?

Til að taka frá bók eða annað safngagn þarf að skrá sig inn á leitir.is. Finna gagnið í leit, smella á það og velja Taka frá undir Get it. Velja Bókasafn Kópavogs, ýmist aðalsafn eða Lindasafn eftir hentugleika, og smella svo á Senda beiðni. 

Hvernig endurnýja ég?

Til að endurnýja bækur þarf að skrá sig inn á leitir.is, velja Útlán í fellilista undir nafninu þínu og endurnýjar þar öll útlán í einu eða velja hvaða útlán á að endurnýja.  

Hvað er millisafnalán?

Millisafnalán á höfuðborgarsvæðinu felst í því að fá bækur, sem eru ófánlegar á því svæði, frá landsbyggðinni. 

Hvað er á Rafbókasafninu?

Hellingur af raf- og hljóðbókum ásamt fjöldanum öllum af tímaritum sem þú getur lesið og hlustað á með gildu skírteini á Bókasafni Kópavogs!

Raf- og hljóðbækur lánast eins og á hefðbundnu bóksafni, þ.e. eftir eintakafjölda sem safnið á en tímaritin eru ekki bundin við eintök heldur eru lánuð í streymi.

Hvernig fæ ég lykilorð?

Það er gert með því að skrá sig inn á leitir.is því Leitir og Rafbókasafnið nota sama lykilorð. Athugaðu þó að notandinn þinn á Leiti er kennitalan þín en notandinn á Rafbókasafninu er númerið á bókasafnsskírteininu þínu (GExxxxxxxx). Til að fá nýtt eða endurstilla lykilorð smellið á hnappinn hér:

Er ég með aðgang að Rafbókasafninu?

Ef þú átt gilt skírteini hjá Bókasafni Kópavogs hefur þú aðgang að Rafbókasafninu. 

Hvernig á að skila bók?

Bók í láni frá Rafbókasafninu skilast sjálfkrafa að 21 degi liðnum. Hægt er að skila fyrr ef lánþegi vill.

Hvernig les ég eða hlusta?

Best er að nota appið Libby frá Overdrive en annars er hægt að lesa af síðunni sjálfri. 

Innkaupatillaga

Eigum við ekki bókina sem þú ert að leita að?

Láttu okkur vita og við skoðum málið.

Ef við kaupum bókina færð þú hana fyrst. 

Gjafabækur

Bókasafnið tekur ekki við bókagjöfum nema ákveðnum skilyrðum sé mætt.
Starfsfólk er tilbúið að skoða bækur á íslensku og ensku sem eru vel með farnar, hreinar og vellyktandi.
Sjaldan er tekið við gömlum bókum en þær eru einnig skoðaðar og aldrei er tekið við gömlum alfræðiritum. 

Ef þú ert með bókagjöf sem þú vilt að við skoðum þá endilega hafðu samband hér: 

Aðalsafn

mán
8-18
24. des-26. des
Lokað
fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán
13-18
24. des-26. des
Lokað
fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán
8-18
24. des-26. des
Lokað
fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán
13-18
24. des-26. des
Lokað
fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað