Náttfatakósí

Bergrún og Tindur bjóða krökkum að koma í náttfatakósí og upplestur á bókasafninu. Komið í uppáhalds náttfötunum ykkar.
Jólahúsið hennar Sonju

Rithöfundurinn Björg Jóna Birgisdóttir mun lesa upp úr barnabók sinni Jólahúsið hennar Sonju. Jólahúsið hennar Sonju er hlý og falleg jólasaga sem byggir á æskuminningu móður höfundar, Sonju Backman. Sagan gerist á sveitabæ við Háaleitisveg í Reykjavík um miðja síðustu öld og lýsir jólaundirbúningi, eftirvæntingu og lífi barna á tímum sem nú eru að mestu […]
Bókamerkjasmiðja

Bækur eru bestar | Read for Real Komdu og föndraðu skemmtileg origami-bókamerki. Öll hjartanlega velkomin. Allt efni á staðnum. Viðburðurinn er hluti af Bækur eru bestar, samevrópska verkefninu Read for Real, European Authors Day sem er styrkt af Creative Europe. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga á bóklestri með því að tengja lesendur og höfunda […]
Opni bókaklúbburinn | Segðu frá bókinni þinni

Bækur eru bestar | Read for Real Áttu uppáhaldsbók? Ertu að lesa eitthvað spennandi núna? Eða langar þig einfaldlega að heyra hvað aðrir lesendur hafa verið að njóta? Komdu í notalegan pop-up bókaklúbb, eitt skipti, þar sem engin ákveðin bók er á dagskrá. Hver og einn fær tækifæri til að segja frá bók að eigin […]
Ungbarnanudd | Foreldramorgunn

Eyrún Björk Svansdóttir hjúkrunarfræðingur kennir foreldrum ungbarnanudd. Rannsóknir sýna fram á marga kosti ungbarnanudds, það viðheldur m.a. heilsu, bætir svefn og eykur öryggistilfinningu, vellíðan og tengslamyndun. Foreldrar og yngstu börnin velkomin. Foreldramorgunninn fer fram á græna teppinu í barndadeildinni á 1. hæð aðalsafns. Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast […]
Fögnum útgáfu Uppreisn Skordýranna

Við bjóðum ykkur ungum sem öldnum til útgáfufagnaðar á hinni ævintýralegu en raunsæju bók „Uppreisn skordýranna“ þau eru gefast upp á kaldlyndi mannfólksins sem er alltaf að leita leiða til að klófesta þau. Höfundur les upp úr bókinni og syngur með gestum, hægt verður að skoða skordýr í gegnum smásjá eða láta sér bara nægja […]
Svefn ungra barna | Foreldramorgunn

Kristín Flygenring verður með fræðslu um svefn ungra barna. Hún mun fjalla um góðar svefnvenjur, daglúra, háttatíma, næturvaknanir og fleira sem bætir svefn ungra barna. Kristín Flygenring er sérfræðingur í barnahjúkrun og starfar á göngudeild barna með svefnvanda á Barnaspítala Hringsins. Hún heldur úti vefsíðunni Svefnráðgjöf.is ásamt instagram síðu með fræðslu um svefn fyrir foreldra. […]
Bókaspjall með Karin Härjegård og útgáfuboð

Bækur eru bestar | Read for Real Miðvikudaginn 9. Desember kl. 18:00 heimsækir sænski rithöfundurinn Karin Härjegård aðalsafn og segir frá bókum sínum, rithöfundaferli og þeim innblæstri sem hún sækir í fjöll og skóga Jämtlands í Svíþjóð. Guðrún Sóley Gestsdóttir stýrir umræðum. Að loknu bókaspjalli verður haldið útgáfuhóf í tilefni af útgáfu fimmtu bókar Karin […]
Jólasöngstund með Ragnheiði Gröndal

Allri fjölskyldunni er boðið að njóta notalegrar jólasöngstundar með Ragnheiði Gröndal á Bókasafni Kópavogs. Á dagskránni verða falleg og kunnugleg jólalög og gestir eru hvattir til að taka undir og syngja með. Komið og eigið góða stund saman og fangið jólaandann, þegar aðeins vika er til jóla. Öll velkomin meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis.
Búningaskiptimarkaður

Verið velkomin á búningaskiptimarkað á hrekkjavökunni! Gefðu gömlum búningum framhaldslíf og/eða taktu með þér annan í staðinn. Á aðalsafni verður hægt að skiptast á hrekkjavökubúningum í öllum stærðum og gerðum.
Langleggur og Skjóða á aðalsafni

Langleggur og Skjóða eru systkini jólasveinanna og kunna margar skemmtilegar sögur úr Grýluhelli. Þau hafa heldur betur slegið í gegn síðustu ár og heimsækja hinar ýmsu jólaskemmtanir með glænýja jólasögu á hverju ári. Í ár segir Skjóða frá því þegar hún og Rófa litla systir hennar fengu það mikilvæga verkefni að sækja hið fullkomna jólatré […]
Anime klúbbur fyrir 13-16 ára

Anime klúbbur fyrir unglinga, 13-16 ára, fer fram á Bókasafni Kópavogs á fimmtudögum frá 16-17:45. Við hittumst á þriðju hæðinni og gerum margt skemmtilegt, eins og að föndra, spila borðspil, höfum bíósýningar og margt skemmtilegt.