Arabísk leturgerð verður grunnurinn að abstrakt myndlist í þessari skemmtilegu fjölskyldusmiðju. Í gegnum vatnsliti og teikningu kanna þátttakendur mýkt og form arabískrar leturgerðar og grunnstefin í vatnslitamálun en kennari er Amel Barich.
Smiðjan er á ensku. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Amel Barich er listakona og doktor í jarðfræði. Hún hefur verið búsett á Íslandi um fimm ára skeið. List Amel Barich er innblásin af marokkóskum rótum hennar, persónulegri reynslu og ferðum um heiminn þar sem hún hefur drukkið í sig ólíka menningarheima.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.