Sunna Dís Másdóttir rabbar um nýútkomnar, íslenskar barnabækur í notalegri stund á Bókasafni Kópavogs. Áherslan verður einkum á bækur fyrir börn frá átta ára aldri og upp úr en bókaormar á öllum aldri eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir. Aðgangur er ókeypis.
Sunna Dís Másdóttir er skáld og rithöfundur og hefur fengist við margvísleg verkefni tengd bókmenntum; sem þýðandi, ritstjóri, bókmenntagagnrýnandi, verkefnastjóri bókmennta á Borgarbókasafninu, leiðbeinandi í ritlist og ýmsu öðru. Hún hefur verið gagnrýnandi í bókmenntaþættinum Kiljunni í nokkur ár.
Lista- og menningarráð styrkir Fjölskyldustundir á laugardögum.
Ljósmynd: Saga Sig.