06. maí ~ 11. maí

Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2025

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Barnamenningarhátíð fer fram með pompi og prakt dagana 6.-12. maí. Kíktu á dagskrána í heild sinni og ekki láta þig vanta.

Þriðjudagur 6.5.2025

Lindasafn
16 – 18
Pappírsblómasmiðja fyrir börn og fjölskyldur

Föstudagur 9.5.2025

Salurinn
9 – 12
Leikur að orðum Lögin hans Braga Valdimars
Um 200 leikskólabörn af átta leikskólum í Kópavogi ásamt hljómsveit nemenda frá Tónlistarskólanum í Kópavogi.

Laugardagur 10.5.2025

Bókasafn & Náttúrufræðistofa
13 – 15
Tröllasmiðja

Komdu og búðu til þitt eigið tröll í tröllasmiðju á barnamenningarhátíð á Bókasafni Kópavogs.

15 – 15:30
Töfraloftbelgurinn.
Þátttökusýning fyrir börn á leikskólaaldri. Kötturinn Prófessor og gamla konan Málfríður ferðast um á töfraloftbelg og lenda í allskyns skrítnum ævintýrum. Listahópurinn Kvistur

Sunnudagur 11.5.2025

Bókasafn og Náttúrufræðistofa

12 – 12:20

Sögustund | Börn lesa fyrir börn

Börn úr Lindaskóla bjóða upp á sögustund fyrir börn á leikskólaaldri. Sögustundin fer fram í barnadeildinni.

13 – 13:40
Sungið fyrir dýrin
Fjölskyldutónleikar með Ragnheiði Gröndal, Guðmundi Péturssyni og Birgi Steini Theódórssyni.

14 – 16
Lífveruleit og listasmiðja
Innanhúsfjöruferð í Tilraunastofunni þar börn leita og fræðast um þær lífverur sem þau finna. Listasmiðja innblásin af lífinu neðansjávar í rými Náttúrufræðistofu.

16 – 16:30
Rauðhetta með Silly Suzy og Söllu Möllu
Sígilt ævintýri í trúðslegum og bráðskemmtilegum búningi þar sem áhorfendur fá að leika lykilhlutverk.

Gerðarsafn

12 – 14
Dúskar, fjaðrir, slaufur og strá!
Sköpum fallegar kórónur saman í skemmtilegri smiðju með Sigrúnu Úu. Smiðjan hentar öllum aldri og öll eru velkomin! Efniviður á staðnum.

14 – 17
Dj. Sunna Ben þeytir skífum fyrir krakka á öllum aldri.

15 – 17
Heimur fyrir litla hetju
Hvert barn fær lítinn pappakassa og býr til lítið hús, eða felustað fyrir ímyndaða útgáfu af sjálfu sér — hvort sem það er ofurhetja, riddari, dýr eða eitthvað allt annað! Dýrfinna Benita Basalan og Sadie Cook leiða smiðjuna.

Salurinn

14 – 15
Aldrei látum fjörið falla
Kórar úr Kársnesskóla flytja tónlist úr öllum áttum undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og Þóru Marteinsdóttur.

15 – 15:25
Marimbusveit Smáraskóla leikur fjöruga og taktvissa slagverksmúsík undir stjórn Ástu Magnúsdóttur.

15:30 – 16:10
Glimmersturta og afmælislög
Kórar Hörðuvallaskóla, Kársnesskóla og Smáraskóla flytja hátíðartónlist og músík sem hefur verið samin sérstaklega fyrir kórana. Stjórnendur eru Álfheiður Björgvinsdóttir, Ása Valgerður Sigurðardóttir og Ásta Magnúsdóttir. Kynnir er Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

16:40 – 17:10
Sveitageit og sumarsöngvar
Skólakór Hörðuvalllaskóla undir stjórn Ásu Valgerðar Sigurðardóttur.

Útisvæði

12:30 – 16:30
Viltu vera memmm?
Stultur, sápukúlur, vesen og vatnssull með Memmm Play

16:15 – 16:35
Sumarsveifla og stuð
Skólahljómsveit Kópavogs undir stjórn Össurar Geirssonar

Sýningar daga 6.-11. maí

Bókasafn Kópavogs – aðalsafn

Álfarnir í Borgarholtinu
Samstarf Bókasafns Kópavogs og leikskólanna Marbakki og Urðarhó
ll

Bókasafn Kópavogs bauð elstu börnunum á Marbakka og Urðarhóli í útisögustund á Borgarholtinu fyrir utan bókasafnið og Kópavogskirkju.

Í holtinu býr mikill fjöldi álfa í steinum og klettum og fengu börnin að fræðast um álfana og heyra íslenskar þjóðsögur í þeirra heimabyggð.

Í kjölfarið bjuggu börnin á Marbakka og Urðarhóli til sinn eigin álf úr efnivið að eigin vali. Þessi dásamlegu álfar eru afraksturinn af þeirri vinnu.

Ljóð úr ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs 2025

Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs er haldin í tengslum við Ljóðstaf Jóns úr Vör, árlegra ljóðasamkeppni Lista- og menningarráðs Kópavogs. Markmiðið með keppninni er að efla áhuga barna og ungmenna á ljóðagerð og er grunnskólunum sérstaklega boðið að taka þátt á hverju ári.

Lindasafn

Lita verur á Lindasafni

Á sýningunni Lita verur má sjá verk eftir nemendur í 3. – 7. bekk Lindaskóla. Nemendur lærðu um litafræði, heita og kalda liti, og í kjölfarið sköpuðu þau klippimynda verur úr litríkum pappír. Nemendur tengdu verurnar við eigin áhugasvið t.d. úr bókmenntum, bíómyndum eða úr ímyndunarafli sínu. Verkin eru fjölbreytt, litrík og skemmtileg þar sem meðal annars gefur að líta álfa, tröll og geimverur.

Náttúrufræðistofa Kópavogs

Lífið neðansjávar

Listaverk eftir börn í 2. Bekk úr skólum Kópavogs

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

22
maí
18:00

Konukvöld | Draumráðningar

Aðalsafn | 2. hæð
22
maí
17:00

Konukvöld | Blush

Aðalsafn | 2. hæð
23
maí
11:00

Get together

Aðalsafn
26
maí
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
27
maí
28
maí
28
maí
04
jún
08:00

Plöntuskiptimarkaður

Aðalsafn
30
maí
11:00

Get together

Aðalsafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað