27. nóv 20:00 – 22:00

Bókaspjall

Aðalsafn | 2. hæð

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Einar Kárason, Eliza Reid og Fríða Ísberg verða gestir Guðrúnar Sóleyjar Gestsdóttur í árlegu jólabókaspjalli Bókasafns Kópavogs.

Húsið opnar kl. 19:30, gengið inn á 2. hæð.

Þau lesa úr glænýjum skáldsögum sínum og taka þátt í líflegum samræðum um skáldverk sín sem eru Sjá dagar kona eftir Einar Kárason, Diplómati deyr eftir Elizu Reid og Huldukonan eftir Fríðu Ísberg.

Boðið verður upp á laufléttar veitingar og notalega stemningu. Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Jólabókaspjallið er orðið ómissandi liður í aðventunni og við hlökkum til að sjá ykkur.

Sjá dagar koma eftir Einar Kárason
Í lok 19. aldar hvílir drungi yfir þjóðlífinu en einstaka menn hugsa stórt, þrá framfarir. Allslaus piltur úr Dýrafirði er einn þeirra; óvænt fær hann pláss á amerísku skipi og heldur af stað yfir höf og lönd, óvissuför sem leiðir hann loks á vit athafnaskáldsins Einars Ben. Fjörug saga um bjartsýni, stórhug og stolt frá afburðasnjöllum sagnamanni.

Diplómati deyr eftir Elizu Reid
Fyrsta skáldsaga Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrúar, er spennandi og listilega fléttuð glæpasaga þar sem leyndarmálin eru afhjúpuð hvert af öðru. Morð er framið í miðjum hátíðarkvöldverði kanadískra diplómata í Vestmannaeyjum. Ýmsir liggja undir grun og sendiherrafrúin ákveður að rannsaka málið upp á eigin spýtur.

Huldukonan eftir Fríðu Ísberg
Konurnar í Lohr fjölskyldunni skilja ekki að Sigvaldi þeirra, með alla sína augljósu mannkosti, hafi aldrei gengið út. Ennfremur fá þær ekki skilið þá fráleitu ákvörðun hans að gerast einsetumaður í eyðivík. Dag einn birtist Sigvaldi á dyraþrepi móður sinnar með mánaðargamla stúlku í fanginu og neitar að svara því hver sé móðir barnsins.

Deildu þessum viðburði

12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
19
nóv
20:00

Jólabókaspjall

Aðalsafn | 2. hæð
30
nóv
16:15

Langleggur og Skjóða á aðalsafni

Aðalsafn | Græna teppið á 1. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð
02
des
16:00

Aðventutónleikar TK

Aðalsafn
09
des
16:00

Aðventutónleikar TK

Aðalsafn
16
des
16:00

Aðventutónleikar TK

Aðalsafn
19
des
11:00

Langleggur og Skjóða í Lindaskógi

Lindasafn | Lindaskógur

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

21
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
22
okt
13:00

Stop motion smiðja fyrir 11-15 ára

Aðalsafn | Huldustofa 3. hæð
22
okt
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
22
okt
10:00

Ævintýrahúsasmiðja

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
09:00

Grímusmiðja í vetrarfríi

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað