25. nóv 12:15 – 13:00

Einfaldlega klassík | Hildigunnur Einarsdóttir

Mezzósópransöngkonan Hildigunnur Einarsdóttir er gestur Magnúsar Lyngdal í Einfaldlega klassík að þessu sinni. Hildigunnur hefur um árabil verið í fremstu röð íslenskra söngvara á sviði sígildrar tónlistar og var á þessu ári ráðin ein af fyrstu sex fastráðnu söngvurunum við hina nýstofnuðu óperu.

Hildigunnur lauk söngnámi frá Söngskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi og Hollandi. Hún hefur einnig lokið B.A.-prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Samhliða fjölbreyttum söngferli stjórnar hún Árkórnum í Reykjavík og Kvennakórnum Kötlu, kennir söng og hefur haldið námskeið í söng og skapandi tónlistarmiðlun.

Á undanförnum árum hefur Hildigunnur skipað sér í fremstu röð íslenskra söngvara í kirkju- og tónleikahaldi. Hún hefur flutt stór einsöngshlutverk í verkum Händels og Bachs, komið fram með helstu tónlistarhópum landsins, frumflutt fjölmörg íslensk tónverk og sungið með listafólki á borð við Barböru Hannigan og Yo-Yo Ma.

Árið 2023 hlaut Hildigunnur Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins í flokki sígildrar tónlistar og samtímatónlistar.

Í Einfaldlega klassík ræðir Magnús Lyngdal við Hildigunni um tónlistarferilinn, lífið á sviðinu og ástríðuna fyrir söngnum. Samtalið er kryddað með lifandi tónlistarflutningi sem gefur áheyrendum einstakt tækifæri til að kynnast listakonunni og list hennar.

Aðgangur á viðburðinn er ókeypis og öll eru velkomin.

Einfaldlega Klassík er hluti af viðburðaröðinni Menning á miðvikudögum sem fer fram á miðvikudögum í menningarhúsum Kópavogs og er styrkt af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

04
nóv
02
des

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
20
okt
21
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
22
okt
13:00

Stop motion smiðja fyrir 11-15 ára

Aðalsafn | Huldustofa 3. hæð
22
okt
10:00

Ævintýrahúsasmiðja

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
09:00

Grímusmiðja í vetrarfríi

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað