26. sep 19:00 – 19:45

Flóra mannlífsins

Aðalsafn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Friðarheimspeki búddismans

Eyrún Ósk Jónsdóttir rithöfundur verður með erindi um friðarheimspeki búddismans en hún er alin upp í búddatrú. ,,Eitt einstakt líf, vegur þyngra en allur alheimurinn.“

Te, vatn og sætur biti í boði. Aðgangur ókeypis og öll velkomin.

Flóra mannlífsins er erindaröð um ólíka menningarheima á Bókasafni Kópavogs og er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölmenningarlegu samfélagi.

Verkefnið er styrkt af bókasafnasjóði og Nordplus og snýr að því að koma betur til móts við allan þann fjölbreytta hóp fólks sem heimsækir bókasafnið okkar og halda blómlegri fjölmenningu á lofti.

Aðrir viðburðir í viðburðaröðinni Flóra mannlífsins

Miðvikudaginn 23. október kl. 17:00 – Austræn menning / Session on Estern Cultures: Sali Salem Alazzani og Mia L. Georgsdóttir verða með erindi um austræna menningu og þau austrænu menningarsamfélög sem hafa sest að á Íslandi. Sali starfar sem innflytjenda- og flóttamannasérfræðingur hjá fjölmenningardeild Vinnumálastofnunar. Hún er með meistaragráðu í alþjóðlegum samningarviðræðum á átakasvæðum og Mia er ein af stofnendum Félags kvenna frá Marakkó og hefur tekið þátt í stjórnmálum og boðið sig fram í bæjarstjórnarkosningum.

Miðvikudagurinn 20. nóvember kl. 17:00 – Ferð í gegnum arfleifð og persónulega uppgötvun: Jasmina Vajzovic deilir sögum frá heimalandi sínu Bosníu og Hersegóvínu, ræðir helgisiði, hátíðahöld og hversdaglegar venjur sem gera menningu hennar einstaka. Fyrirlesturinn gefur innsýn í hefðir, gildi og sögur Bosníu og Hersegóvínu og djúpstæð áhrif þessarar arfleiðar á fyrirlesarann.

Miðvikudaginn 22. janúar kl. 17:00 – Saga mín: Sigríður Láretta Jónsdóttir ræðir við þrjá innflytjendur og biður þá um að deila sögu sinni. 

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

10
jan
11:00

Get together

Aðalsafn
11
jan
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
11
jan
11:00

Tala og spila

Aðalsafn
13
jan
12:00

Slökunarjóga

Aðalsafn
14
jan
15
jan
15
jan
16:30

Myndgreining

Aðalsafn | 1. hæð
16
jan
17
jan
11:00

Get together

Aðalsafn
21
jan
25
jan
08:00

Ljóðaandrými

Beckmannstofa á aðalsafni

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað