29. jan 17:00 – 17:45

Flóra mannlífsins | Saga mín

Aðalsafn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Saga mín

Sigríður Láretta Jónsdóttir ræðir við feðga frá Venezúela um ferðalag þeirra sem flóttamenn og tengsl föðurins við Ísland á níunda áratugnum. 

Viðburðurinn verður á ensku og spænsku.

Flóra mannlífsins er erindaröð um ólíka menningarheima á Bókasafni Kópavogs og er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölmenningarlegu samfélagi.

Verkefnið er styrkt af bókasafnasjóði og Nordplus og snýr að því að koma betur til móts við allan þann fjölbreytta hóp fólks sem heimsækir bókasafnið okkar og halda blómlegri fjölmenningu á lofti.

English:
Sigríður Láretta Jónsdóttir speaks to a father and son from Venezuela about their journey as refugees and about the father’s connection to Iceland in the 1980s.

The event will be in English and Spanish.

Español:
Sigríður Láretta Jónsdóttir habla con un padre y un hijo de Venezuela sobre su viaje como refugiados y sobre la conexión del padre con Islandia en los años 1980.

El evento será en inglés y español.

Viðburðurinn er sá seinasti í erindaröðinni en önnur erindi voru eftirfarandi:

Friðarheimspeki búddismans: Eyrún Ósk Jónsdóttir rithöfundur var með erindi um friðarheimspeki búddismans en hún er alin upp í búddatrú. ,,Eitt einstakt líf, vegur þyngra en allur alheimurinn.“

Austræn menning / Session on Estern Cultures: Sali Salem Alazzani og Mia L. Georgsdóttir voru með erindi um austræna menningu og þau austrænu menningarsamfélög sem hafa sest að á Íslandi. Sali starfar sem innflytjenda- og flóttamannasérfræðingur hjá fjölmenningardeild Vinnumálastofnunar. Hún er með meistaragráðu í alþjóðlegum samningarviðræðum á átakasvæðum og Mia er ein af stofnendum Félags kvenna frá Marakkó og hefur tekið þátt í stjórnmálum og boðið sig fram í bæjarstjórnarkosningum.

Ferð í gegnum arfleifð og persónulega uppgötvun: Jasmina Vajzovic deildi sögum frá heimalandi sínu Bosníu og Hersegóvínu, ræddi helgisiði, hátíðahöld og hversdaglegar venjur sem gera menningu hennar einstaka.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

10
sep
19
sep
08:00

Útifataskiptimarkaður

Aðalsafn
11
sep
11:00

Get together

Aðalsafn
12
sep
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
12
sep
15
sep
16
sep
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
16
sep
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
17
sep
10:00

Skynjunarsögustund | Foreldramorgunn

Aðalsafn | 1. hæð
17
sep
18
sep
11:00

Get together

Aðalsafn
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað