29. jan 12:15 – 12:45

Hádegisjazz FÍH

Aðalsafn | 2. hæð

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Í hádeginu þann 29. janúar nk. munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH, þær Guðrún Ösp Sigurmundardóttir, Ingibjörg Elín Jónsdóttir og Iðunn Helgadóttir bjóða upp á ljúfa hádegistóna á Bókasafni Kópavogs. Á tónleikunum munu þær flytja nokkrar af perlunum hans Magnúsar Eiríkssonar en hann snemma á þessu ári. Magnús, eða Maggi Eiríks, var einn ástsælasti og afkastamesti lagahöfundur þjóðarinnar, og það verður sönn ánægja að minnast hans með flutningi laga sem lifa áfram í hjörtum þjóðarinnar. Meðleikur er í höndum Inga Bjarna Skúlasonar.

Þriðja árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.

Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

 

Guðrún Ösp hefur sungið frá því í barnæsku og ávallt verið tónelsk. Á uppvaxtarárunum söng hún í kórum og söngvakeppnum, þó hún að hún hafi eitt sinn hafnað sæti í háskólakórnum vegna þess að henni bauðst að syngja alt rödd sem hún hefur þó síðan lært að elska. Árið 2017 gekk hún til liðs við Kvennakór Kópavogs (nú Kvennakórinn Blika) og hefur síðan hafið söngnám í rythmískum söng í Tónlistarskóla FÍH þar sem hún stundar nú framhaldsnám. Hún sækir innblástur til listamanna á borð við Söru Bareilles og Emilíönu Torrini.

Ingibjörg Elín stundar söngnám við tónlistarskóla FÍH á miðstigi. Fram að því hefur hún aðallega sungið í skólakórum og sturtunni. Hana dreymir um að verða söngkona og er þakklát fyrir hvert tækifæri sem hún fær til að komast nær því að gera þann draum að veruleika.

Iðunn Helgadóttir er söngkona og stundar um þessar mundir söngnám á miðstigi við tónlistarskóla FÍH. Tónlist hefur verið ástríða hjá henni frá unga aldri og byrjaði hún í tónlistarnámi fimm ára. Á grunnskóla árum lærði hún á nokkur hljóðfæri; fiðlu, selló, gítar og hvað lengst af á píanó. Iðunn hefur einnig sótt margvís söng- og lagasmíðanámskeið. Hún ætlaði sér að verða poppstjarna þegar hún yrði stór – en starfar í dag sem lögfræðingur.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

31
júl
11:00

Get together

Aðalsafn
04
ágú
05
ágú
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
05
ágú
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
06
ágú
14:00

Fatabreytingar og saumavélakennsla

Bókasafn Kópavogs aðalsafn
06
ágú
12:15

Hinsegin hádegistónar

Aðalsafn | 2. hæð
07
ágú
11:00

Get together

Aðalsafn
07
ágú
14:00

Cosplay smiðja fyrir 12+

Tilraunastofan
08
ágú
12:00

Cosplay smiðja fyrir 12+

Tilraunastofan

Sjá meira

Aðalsafn

Frídagur verslunarmanna
Lokað
Þri-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

Frídagur verslunarmanna
Lokað
Þri-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

Frídagur verslunarmanna
Lokað
Þri-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

Frídagur verslunarmanna
Lokað
Þri-fös
13-18
lau-sun
Lokað