21. maí 12:15 – 12:45

Hádegistónar FÍH | Lögin hans KK

Aðalsafn | 2. hæð

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Tónleikar sem frestað var í mars vegna veðurs eru nú komnir með nýja dagsetningu 21. maí.

Í hádeginu þann 21. maí næstkomandi munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH syngja ljúfa tóna fyrir gesti.

Tónlistarmaðurinn KK átti stórafmæli daginn sem tónleikarnir voru upphaflega á dagskrá og ætla flytjendur því að flytja lög eftir hann.

‐——-

Agnes Sólmundsdóttir er 28 ára vestfirsk söngkona frá Þingeyri í Dýrafirði. Þar hóf hún snemma tónlistarnám á fiðlu og píanó. Hún hefur tekið þátt í ýmsum tónlistarverkefnum í gegnum tíðina. Hún söng og spilaði á fiðlu með hljómsveitinni WAYWARD, var meðlimur Gospelkórs Jóns Vídalíns en síðustu ár hefur hún mikið starfað sem bakraddasöngkona t.a.m í þáttaröðunum Kvöldstund með Eyþóri Inga á Stöð 2,  Tribute tónleikum RIGG viðburða „George Michael Sextugur“, stórafmælistónleikum Herberts Guðmundssonar ofl. 

Agnes hóf nám í rytmískum söng við Tónlistarskóla FÍH árið 2022. Hún lauk miðprófi haustið 2024 og er nú á framhaldsstigi.

——–

Bríet Vagna er 22 ára gömul vestfirsk söngkona sem stundar nám við Tónlistarskóla FÍH. Bríet hóf gítar- og söngnám við tónlistarskóla Ísafjarðar árið 2017 en fluttist til Reykjavíkur árið 2022 til að hefja nám við tónlistarskóla FÍH. Tónlist hefur alltaf verið stór partur af hennar lífi og nýtur hún sín hvergi betur en þegar hún spilar á gítar og syngur. Hún hefur komið fram á ýmsum viðburðum bæði opinberlega og í einkasamkvæmum. 

Bríet Vagna stefnir á að ljúka framhaldsprófi í rytmískum söng nú í vor.

——–

Þórunn Freyja er 24 ára söngkona úr Reykjavík, hún hefur sungið frá því hún man eftir sér og fór að koma fram á seinni árum í grunnskóla. Síðan þá hefur hún tekið að sér allskonar veislur og athafnir.

Þórunn lærði á píanó á yngri árum en hætti því þegar áhuginn færðist meira yfir í sönginn. Hún hóf nám við söngdeild FÍH 2024 en hafði áður prófað eina önn í klassískum söng.

 

Þriðja árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.
Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
jún
17
jún
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
17
jún
12:00

17. júní í Kópavogi

Kópavogur
19
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
23
jún
24
jún
16:00

Náttúrulist á Jónsmessu fyrir börn

Aðalsafn | 1. hæð
24
jún
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
24
jún
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
26
jún
11:00

Get together

Aðalsafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-Þri
8-18
17. júní
11-17
fim-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-Þri
13-18
17. júní
Lokað
fim-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-Þri
8-18
17. júní
11-17
fim-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-Þri
13-18
17. júní
Lokað
fim-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað