12. nóv 20:00 – 21:00

Haltu mér – slepptu mér: kvíði ungmenna

Aðalsafn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Haltu mér – slepptu mér er fyrirlestraröð fyrir foreldra ungmenna á aldrinum 12-18 ára um ýmis málefni sem tengjast þroska og uppeldi unglinga með áherslu á áskoranir í nútímasamfélagi.

Kvíði ungmenna
Berglind Brynjólfsdóttir, sálfræðingur hjá Sálstofunni, ræðir um einkenni kvíða, hvað hægt er að gera til að aðstoða ungmenni með kvíða og forvarnir gegn honum.

Berglind Brynjólfsdóttir – sálfræðingur
Berglind hefur lokið BA prófi í sálfræði við Háskóla Íslands og Kandídatsprófi frá Kaupmannahafnarháskóla. Einnig lauk hún sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og hefur setið fjölda námskeiða,  vinnustofa og sérhandleiðslu í sértækum verkefnum, s.s. áfallavinnu, hegðunarmótun og meðferðarvinnu einhverfra barna/unglinga.

Önnur erindi í Haltu mér slepptu mér koma inn á málefni á borð við karlmennskuhugmyndir, miðlalæsi og lestrarvenjur ungmenna.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

24. september 2024, kl. 20:00
Miðlalæsi: Algóritminn sem elur mig upp
Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands, Skúli Bragi Geirdal, heldur erindi um miðlalæsi og samfélagsmiðlanotkun ungmenna. Skúli fer yfir þau atriði í stafrænu umhverfi sem ber að varast auk þess að gefa góð ráð varðandi notkun barna á skjátækjum og samfélagsmiðlum. Erindið byggir á niðurstöðum rannsóknar Fjölmiðlanefndar í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og Maskínu.

22. október 2024, kl 20:00
Karlmennskuhugmyndir og orðræða ungmenna
Þorsteinn V. Einarsson, kennari og kynjafræðingur, fjallar um skaðlegar karlmennskuhugmyndir, orðræðu ungmenna, algóritma samfélagsmiðla og hvernig er hægt að skapa og styðja við jákvæða karlmennsku.

3. desember 2024 kl. 20:00
Bókaval og lestrarvenjur ungmenna
Jón Geir Jóhannsson, sérfræðingur frá Nexus, ræðir við foreldra um bækur fyrir ungmenni, val á bókum og mikilvægi þess að ungmenni fái og finni bækur sem vekja áhuga þeirra og eru við hæfi.

7. janúar 2025 kl. 20:00
Fræðsla um svefn og svefnráð fyrir ungmenni
Dr. Erla Björnsdóttir fer yfir mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu ungmenna.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

27
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
30
jún
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
01
júl
01
júl
16:00

SÖGUSTUND | Örverk og leiklestrar

Aðalsafn | ljóðahorn 2. hæð
02
júl
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
02
júl
15:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
04
júl
11:00

Get together

Aðalsafn
07
júl
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
08
júl

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað