Lilja Sigurðardóttir býður þeim sem hyggja á glæpasöguskrif upp á innsýn í sitt skapandi ferli á Bókasafni Kópavogs.
-Hvernig er best að skipuleggja skáldsögu?
-Hvernig á að skapa trúverðugar persónur?
-Og hvernig á að fara að því að skrifa heila bók?
Nauðsynlegt að skrá sig með því að senda tölvupóst á eyrun.osk@kopavogur.is.
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Glæpafár á Íslandi á vegum Hins íslenska glæpafélags í samstarfi við almenningsbókasöfn landsins til að fagna 25 ára afmæli félagsins.