06. maí 12:15 – 13:00

Leslyndi | Auður Jónsdóttir

Aðalsafn | sviðið

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Auður Jónsdóttir verður gestur okkar í Leslyndi miðvikudaginn 6. maí.

Auði þarf vart að kynna enda er hún eitt þekktasta og virtasta skáld landsins og hefur jafnframt vakið athygli sem samfélagsrýnir og blaðamaður.

Auður Jónsdóttir hefur skrifað 10 skáldsögur, þrjár barnabækur og tvær fræðibækur almenns eðlis. Bækur eftir hana hafa verið þýddar á tólf tungumál. Þá hefur hún gefið út tvær bækur almenns eðlis með fræðilegu ívafi sem báðar hlutu verðlaun og aðrar tilnefningar. Hún hefur hlotið Bókmenntaverðlaun Íslands og sex sinnum verið tilnefnd til þeirra. Þá hefur hún tvívegis verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og tvisvar hlotið Fjöruverðlaunin.

Þá hefur Auður hlotið rithöfundaviðurkenningu RÚV og eins verið hússkáld Borgarleikhússins í eitt ár.

Tvær kvikmyndir hafa verið gerðar eftir skáldsögum hennar: Tryggð og Skjálfti. Leikritið Fólkið í kjallaranum sem heitir eftir samnefndri bók hennar var sýnt í Borgarleikhúsinu og hlaut Grímuna sem leikverk ársins.

Auður hefur skrifað fyrir fjölmiðla síðan á unga aldri, þar á meðal: RÚV, Morgunblaðið, Kjarnann, Heimildina, Nýtt líf, DV og fleiri.

Hún ritstýrði menningunni á Heimildinni í tvö ár og eins bókablöðum miðlsins. Þá starfaði hún jafnframt á ritstjórn þar og skrifaði almennt efni.

Þá hefur Auður gert tvær sjónvarpsmyndir fyrir RÚV, aðra um rithöfundinn Auði Haralds sem sýn hefur verið og aðra um rithöfundi Vigdísi Grímsdóttur – sem er væntanleg.

Og hún hefur þýtt tvö leikverk upp úr ensku fyrir Þjóðleikhúsið: Smán og Upphaf – en líka eitt upp úr dönsku: Það sem er.

World Literature Today valdi skáldsöguna Quake (Stóri skjálfti) eina af 75 athyglisverðustu skáldsögunum sem út komu á ensku það árið.

Að lokum má geta þess að Auður var tilnefnd til Blaðamannaverðlauna ársins árið 2024.
—————

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.

Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

26
maí
26
maí
30
maí
08:00

Inniblómaskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
27
maí
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
28
maí
12:15

Hádegistónar FÍH

Aðalsafn | 2. hæð
29
maí
11:00

Get together

Aðalsafn
01
jún
12:15

Hádegistónleikar með Loo Sim Ying

Aðalsafn | Sviðið 2. hæð
03
jún
16:00

Fjölskyldujóga í barnadeild

Aðalsafn | Barnadeild

Sjá meira

Aðalsafn

25. maí
Lokað
Þri-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

25. maí
Lokað
Þri-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

25. maí
Lokað
Þri-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

25. maí
Lokað
Þri-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað