02. des 12:15 – 13:00

Leslyndi | Halldór Guðmundsson

Aðalsafn

Rithöfundurinn, útgefandinn og bókmenntaunnandinn Halldór Guðmundsson verður gestur Leslyndis 2. desember. Fá hafa fylgst jafn náið með íslensku bókmenntalífi og hann, hvort sem er sem höfundur, útgefandi, gagnrýnandi eða stjórnandi á vettvangi menningar og lista. Um áratugaskeið hefur hann verið virkur í umræðunni um menningu og bókmenntir hér á landi og hefur tekið þátt í að kynna íslenskar bókmenntir út fyrir landsteinana. 

Halldór hefur skrifað fjölda bóka, þar á meðal margverðlaunaða ævisögu Halldórs Laxness. Hann hefur starfað hjá helstu bókaútgáfum landsins, komið að útgáfu og kynningu ótal verka og hefur gegnt veigamiklum störfum í íslensku menningarlífi. Þetta haust er hann að senda frá sér persónulega bókmenntasögu: Líf í bókum – íslenskar bókmenntir í þúsund ár. 

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk; orðið er frjálst. 

Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum. 

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. 

Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

04
nóv
02
des

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

24
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
26
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
26
okt
27
okt
28
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
28
okt
16:30

Myndaspjall

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
28
okt
16:00

Skynjunarsögustund

Aðalsafn | barnadeild
28
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
28
okt
17:00

Höfundaheimsókn | Íris Ösp

Aðalsafn 2. hæð
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað