06. mar 12:15 – 13:00

Leslyndi með Braga Ólafssyni

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir rithöfundar stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.

Bragi Ólafsson kemur í heimsókn á Bókasafn Kópavogs í upphafi marsmánaðar og segir frá bókum sem hafa hreyft við honum.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Bragi Ólafsson fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1962. Hann nam spænsku við Háskóla Íslands í einn vetur og við Háskólann í Granada á Spáni 1985 – 1986. Hann hefur unnið ýmis störf í Reykjavík, á póstinum, í banka og plötubúð og var um árabil liðsmaður ýmissa hljómsveita, meðal annars Sykurmolanna og ferðaðist með sveitinni víða um lönd.

Fyrsta bók hans, ljóðabókin Dragsúgur, kom út árið 1986 og síðan hefur hann sent frá sér ljóðabækur, smásögur, leikrit og skáldsögur. Fyrsta skáldsaga hans, Hvíldardagar, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1999 og sú næsta, Gæludýrin, einnig árið 2001. Bragi hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum 2004 fyrir skáldsöguna Samkvæmisleikir. Sendiherrann var bæði tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Bragi er einn af stofnendum útgáfufélagsins Smekkleysu sem gefið hefur út texta og tónlist og staðið fyrir uppákomum af ýmsu tagi. Bragi hefur þýtt ljóð og skáldsöguna Glerborgin eftir Paul Auster. Verk hans hafa birst í erlendum þýðingum.  

Deildu þessum viðburði

04
nóv
02
des

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

13
okt
14
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
14
okt
16:30

Myndgreining

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
14
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
15
okt
10:00

Foreldramorgunn

Aðalsafn
15
okt
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
17
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
17
okt
13:00

Bókbandssmiðja 

Aðalsafn barnadeild
19
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað