08. apr 12:15 – 13:00

Leslyndi | Yrsa Sigurðardóttir

Aðalsafn | sviðið

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Glæpasagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir verður gestur í Leslyndi miðvikudaginn 8. apríl kl. 12:15.

Yrsa er einn vinsælasti og þekktasti rithöfundur landsins og hefur um árabil heillað lesendur með spennusögum sínum, sem margar hafa farið sigurför um heiminn og verið þýddar á fjölmörg tungumál. Hún hefur hlotið Blóðdropann þrívegis fyrir bækur sínar Ég man þig, DNA og Bráðina og verið tilnefnd til bæði Blóðdropans og Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna.

Ferill Yrsu hófst þó á barnabókum og fyrir verk sín á því sviði hlaut hún bæði viðurkenningu Barnabókaráðs Íslands og Íslensku barnabókaverðlaunin. Yrsa er byggingatæknifræðingur að mennt og starfar sem slíkur samhliða ritstörfum.

Í Leslyndi ræðir Yrsa um bækurnar sem hafa mótað hana sem lesanda og rithöfund og deilir sínum uppáhaldsbókum með gestum.

————-

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.

Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Deildu þessum viðburði

04
nóv
02
des

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

14
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
14
okt
16:30

Myndgreining

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
14
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
15
okt
10:00

Foreldramorgunn

Aðalsafn
15
okt
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
17
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
17
okt
13:00

Bókbandssmiðja 

Aðalsafn barnadeild
19
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
20
okt
22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
22
okt
23
okt
09:00

Grímusmiðja í vetrarfríi

Aðalsafn | 1. hæð
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað