13. jan 12:00 – 14:00

Ó!Rói með ÞYKJÓ

Lindasafn
Hrjúfir könglar, dúnmjúkir ullarhnoðrar og kræklóttar greinar

Við opnum skilningarvitin okkar mjúklega á nýju ári og förum skapandi höndum um þann náttúrulega efnivið sem við getum fundið í nærumhverfinu á þessum árstíma.

Ó!Rói er skapandi smiðja fyrir börn og fjölskyldur þeirra með hönnunarteyminu ÞYKJÓ.

Við óróagerð æfum við sjálfa jafnvægislistina og lærum hvernig ólíkir hlutir geta myndað eina samhangandi heild.

Smiðjan hentar börnum í fylgd fullorðinna frá 4 ára aldri og fer fram í Bókasafni Kópavogs – Lindasafni.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

ÞYKJÓ er þverfaglegt teymi hönnuða sem vinna fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sviði upplifunarhönnunar, innsetninga og vöruhönnunar. 

Hönnunarstarf þeirra miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í samstarfi við mennta- og menningarstofnanir. 

Á meðal nýlegra verkefna er innsetningin Hljóðhimnar í Hörpu, húsgagnalínurnar Kyrrðarrými og Hreiður og þátttökuverkefnið Gullplatan: Sendum tónlist út í geim!

ÞYKJÓ hefur verið tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands í tvígang, árið 2021 og 2022 og hlaut nýverið tilnefningu til alþjóðlegu YAM verðlaunanna.

Viðburðurinn er liður í viðburðaröðinni Fjölskyldstundir á laugardögum sem styrkt er af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

21
sep
16
nóv
13:00

Luktasmiðja

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

30
júl
31
júl
06
ágú
07
ágú
12
ágú
17
ágú
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
13
ágú
14
ágú
20
ágú
20
ágú
13:00

Ævintýrasmiðja

Aðalsafn
02
sep
07
sep
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
07
okt
12
okt
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
04
nóv
09
nóv
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað