Spila- og púslskiptimarkaður

Dagana 11.-16. maí verður spila- og púslskiptimarkaður á aðalsafni Bókasafns Kópavogs. Komdu með heilt spil/púsl sem ekkert vantar í og taktu annað í staðinn. Það má bæði skilja eftir og/eða taka spil/púsl án allra kvaða. Njótum með fjölskyldu og vinum og spilum saman í sumar!

Sumarlestrargleði

Miðvikudaginn 20. maí kl.17.00 ætlum við að hefja sumarlestrarátakið okkar með smá gleði á bókasafninu. Ævar Þór Benediktsson kemur í heimsókn til okkar og les upp úr bókum sínum og verður með lestrarhvatningu fyrir börnin. Síðan munum við kynna sumarlestrarátakið. Hlökkum til að sjá ykkur í sumarlestrarskapi.

Plöntuskiptidagur Garðyrkjufélags Íslands

Árlegur plöntuskiptidagur Garðyrkjufélags Íslands fer fram við aðalsafn laugardaginn 30. maí kl. 12-14. Komdu með pottaplöntur og afleggjara, inniblóm og útiblóm, stór og smá og taktu plöntu með þér heim í staðinn. Allt grænt og vænt velkomið!

Stjörnustríðsfjör

4. maí er alþjóðlegi Stjörnustríðsdagurinn og að því tilefni munu nokkrir vondir kallar úr 501 herdeild keisaraveldisins kíkja í heimsókn til okkar í barnadeild. Við hvetjum alla stóra og smá til að mæta í Stjörnustríðsbúning og hitta vondu kallana. „May the fourth be with you,“ eins og þeir segja á Stjörnustríðs-enskunni.

Kópurinn | Sirkussmiðja Hringleiks 

Sirkussmiðja fyrir alla fjölskylduna Hringleikur opnar dótakassann sinn með alls kyns sirkusáhöldum og býður gestum og gangandi að koma og prófa undir handleiðslu reynds sirkuslistafólks. Um opna smiðju er að ræða þar sem stoppa má við í lengri eða skemmri tíma.  Stór og smá geta leikið sér saman og lært að djöggla, snúa diskum eða ná jafnvægi á […]

Kópurinn | Tröllabrúðusmiðja

Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggla áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira og enginn veit hvert förinni er heitið.   Í fjörugu nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna.   Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast […]

Hádegistónar

Hádegistónleikar með Jasmín Kristjánsdóttur. Jasmín mun syngja lög frá sjötta og sjöunda áratugnum við undirspil gítarleikarans Fannars Sigurðssonar. Jasmín hefur verið í tónlistarnámi við Söngskóla Reykjavíkur og Fannar hjá Tónlistarskóla FÍH. Öll velkomin. 

Kópurinn | Dagdraumar 

Brot úr dansverkinu Dagdraumar þar sem áhorfendur eru leiddir inn í undraheim stúlku sem ferðast inn í skóg og út að sjó, finnur vef og snoturt nef. Hún hittir dýr og girnist eiginleika þeirra.  Bara ef hún gæti verið eins liðug og slanga eða fengið vængi eins og svanur!  Í framhaldi af sýningunni taka við leikandi dansæfingar þar sem börn fá að […]

Hádegisjóga í Huldustofu

International Day of Yoga Í tilefni af alþjóðadegi Jóga bíður indverska sendiráðið í samstarfi við Bókasafn Kópavogs upp á hádegisjóga með áherslu á vellíðan og til að stuðla að heilsu og friði á heimsvísu. Öll velkomin, bæði þeir sem vilja prófa jóga í fyrsta sinn og lengra komnir.  

Fjölskyldujóga í barnadeild

International Day of Yoga Í tilefni af alþjóðadegi Jóga bíður Indverska sendiráðið í samstarfi við Bókasafn Kópavogs upp á fjölskyldujóga í barnadeild með áherslu á vellíðan og til að stuðla að heilsu og friði á heimsvísu. Öll börn og fjölskyldur þeirra eru velkomin.

Töfraloftbelgurinn | Leiksýning

Töfraloftbelgurinn er þátttökusýning fyrir börn á leikskólaaldri. Listahópurinn Kvistur sýnir 30 mínútna barnasýningu í barnadeild safnsins. Öll velkomin. Frítt inn.  Sýningin er hluti af Ungi 2026 – alþjóðleg sviðslistahátíð fyrir börn. Töfraloftbelgurinn er þátttökusýning fyrir börn á leikskólaaldri (0-5 ára) og byggir á samnefndri barnabók eftir Hildi Kristínu Thorstensen sem fjallar um köttinn Prófessor og […]

Geltu!

Bókasafn Kópavogs og Molinn miðstöð ungs fólks í Kópavogi bjóða upp á sýningu á stuttmyndinni Geltu!  Molinn býður ykkur velkomin í 0% freyðivín og makkarónur fyrir sýninguna, í húsnæði Molans (Hábraut 2). Fyrir sýningu verður rölt saman yfir götuna á bókasafnið, þar sem myndin verður sýnd. Eftir sýninguna verður boðið upp á pallborðsumræður með leikstýrum […]

Aðalsafn

mán-Þri
8-18
17. júní
11-17
fim-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-Þri
13-18
17. júní
Lokað
fim-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-Þri
8-18
17. júní
11-17
fim-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-Þri
13-18
17. júní
Lokað
fim-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað