Suður-amerísk tónlistarreisa | Heimstónlist

Andrés Ramón tónlistarmaður býður hlustendum í ferðalag um Suður-Ameríku þar sem hann flytur þjóðlög frá ýmsum löndum, spilar á mismunandi strengjahljóðfæri og syngur á spænsku og portúgölsku. Ferðalagið hefst á Andesfjallasvæðinu með þjóðlögum frá Perú, Bólivíu og Kólumbíu. Lögin hljóma við undirleik á charango, 10-strengja hljóðfæri sem er einkennandi fyrir tónlistarstefnur frá Andesfjöllunum, þar sem […]

Leslyndi með Jóni Kalman Stefánssyni

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur, mætir á Bókasafn Kópavogs í aprílbyrjun og fjallar um nokkrar bækur sem hafa skilið eftir spor. Aðgangur er ókeypis og […]

Sjávarföll | höfundaheimsókn

Hvaða áhrif hefur það þegar afar sjaldgæf en arfgeng heilablæðing leggst á eina fjölskyldu? Hvernig er tilfinningin þegar skuggi fjölskyldusjúkdómsins hangir yfir og aldrei er vitað hvern hann mun leggjast á? Arfgeng heilablæðing er séríslenskur erfðasjúkdómur, sem erfist ókynbundið ríkjandi. Talið er að um helmingslíkur séu á að barn sem fæðist inn í fjölskyldu þar […]

Ef ég væri grágæs | leiksýning

Ef ég væri grágæs – Við fögnum sumrinu með leiksýningu í barnadeild.  Grjótgerður var afar merkileg lítil vera, grá á litin, alveg eins og steinn. Hún bjó efst uppi á fjalli þaðan sem hún horfði yfir litríka veröldina. En hún var leið og þung á brá, því hún var bara grá, og henni var farið […]

Kort og kórónur í vetrarfríinu

Komdu og föndraðu kórónur og kort eða jafnvel bókamerki, og skreyttu með úrklippum úr gömlum bókum. Myndakassi verður á staðnum og hægt að taka af sér skemmtilegar myndir. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir Smiðjan verður haldin í Tilraunastofunni á fyrstu hæð safnsins. 

Rósa og Rauða serían

Komdu að eiga rómantíska hádegisstund á Bókasafni Kópavogs á Valentínusardaginn. Rósa Vestfjörð Guðmundsdóttir er goðsögn, en hún gaf út Rauðu seríuna í 38 ár og urðu titlarnir um 2.300 talsins. Rósa verður gestur á Bókasafni Kópavogs á Valentínusardaginn, les upp úr bókunum og spjallar um tilurð bókanna. Frítt inn og öll velkomin.

Marokkósk matar- og menningarhátíð

Félag kvenna frá Marokkó heldur marokkóska matar- og menningarhátíð á Bókasafni Kópavogs. Boðið verður upp á henna tattoo, kennslu í arabísku letri, marokkóskar kökur og te, tónlist og sögustund á arabísku, öll velkomin. يسرّنا دعوتكم للاحتفال بعيد الفطر المبارك ‎احتفالًا بهذه المناسبة السعيدة، تدعوكم جمعية النساء المغربيات في آيسلندا لحضور مهرجان الثقافات المغربية في مكتبة […]

Aðstoð við skattframtal 

Margrét V Friðþjófsdóttir, viðurkenndur bókari og Soumia L. Georgsdóttir, viðskiptafræðingur bjóða upp á aðstoð við að gera skattframtal fyrir einstaklinga, fimmtudaginn 6. mars frá 17:00-20:00 á Bókasafni Kópavogs. Aðstoðin er fólki að kostnaðarlausu. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið eyrun.osk@kopavogur.is, öll velkomin. Aðstoðin fer fram í Tilraunastofu á fyrstu hæð. […]

Grímuföndur á Safnanótt

Komdu og búðu þér til grímu á Safnanótt! Boðið verður uppá grímuföndur fyrir alla aldurshópa, glimmerlím, fjaðrir og alla heimsins liti svo þú skartir þínu fegursta á Safnanótt. Föndrið verður á 1. hæð, Bókasafnsins og Náttúrufræðistofu.Allur efniviður og leiðbeiningar á borðnum á staðnum. Aðgangur er ókeypis! Öll hjartanlega velkomin! Viðburðurinn er liður í dagskrá Safnanætur […]

Kópavogs-karókí

Fjörugasti og fjölskylduvænasti skemmtistaðurinn verður opinn á Bókasafni Kópavogs á Safnanótt þar sem fjölskyldur og vinahópar koma saman til að hafa gaman og syngja karókí. Á staðnum verður:-Karókí-Poppvél-Myndakassi-Diskóljós Ekki missa af sannkallaðri partýstemningu fyrir alla fjölskylduna. Öll velkomin – jafnt ungir sem aldnir. Viðburðurinn verður haldinn í Tilraunastofunni á fyrstu hæð Bókasafns Kópavogs. Menningar- og […]

Bækurnar á náttborðinu | Lindasafn

Bækurnar á náttborðinu er skemmtilegur lesklúbbur á Lindasafni. Þar munum við hittast og spjalla á léttum nótum um bækurnar sem við erum að lesa, deila áhugaverðum hugmyndum að lesefni og eiga skemmtilega stund saman. Klúbburinn hittist fyrsta miðvikudag í mánuði og eru öll velkomin. Hlökkum til að hitta ykkur!

Bækurnar á náttborðinu | Lindasafn

Bækurnar á náttborðinu er skemmtilegur lesklúbbur á Lindasafni. Þar munum við hittast og spjalla á léttum nótum um bækurnar sem við erum að lesa, deila áhugaverðum hugmyndum að lesefni og eiga skemmtilega stund saman. Klúbburinn hittist fyrsta miðvikudag í mánuði og eru öll velkomin. Hlökkum til að hitta ykkur!

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað