Létt tækniaðstoð

Vantar þig smá aðstoð við tæknina?Alla fimmtudaga kl. 13–14 bjóðum við eldri borgurum upp á létta tækniaðstoð á aðalsafni Bókasafns Kópavogs. Við aðstoðum meðal annars með Rafbókasafnið, öpp og stillingar í símum, prentun og skönnun, tölvupóst og önnur einföld tæknimál. Komdu við og við reynum að leysa málið saman!

Fjölmenningarleg hátíð | Jólahátíð

GETA stendur fyrir fjölmenningarlegri jólahátíð í barnadeild bókasafnsins 26. nóvember. Boðið verður upp á fjölbreyttar smiðjur sem kynna jólasiði og hefðir frá ólíkum löndum, auk skemmtilegra viðburða í anda jólanna. Komið og upplifið hvernig jólunum er fagnað víða um heim.
Hrekkjavakan um allan heim

GETA stendur fyrir fjölmenningarlegri hátíð í barnadeild bókasafnsins 31. október. Boðið verður upp á fjölbreyttar smiðjur frá ólíkum löndum, matarsmökkun og skemmtilega viðburði í anda hrekkjavökunnar.
Stop motion smiðja fyrir 11-15 ára

Í smiðjunni kynnumst við möguleikum stop motion hreyfimyndagerðar. Við skoðum hverniger hægt að nota alls konar hluti í að búa til skemmtileg myndbönd og hvernig við getum búiðtil okkar eigin persónur til að leika í þeim. Krakkarnir fá tækifæri til að búa til sína eigin brúðu og láta hana lifna við með stop motionhreyfimyndagerð. Eftir […]
Höfundaheimsókn | Íris Ösp

Í aðdraganda hrekkjavökunnar fáum við rithöfundinn Írisi Ösp Ingjaldsdóttur í heimsókn til okkar á bókasafnið Íris hefur vakið athygli fyrir afar spennandi og óhugnanlegar glæpasögur en í fyrstu skáldsögu sinni, Röskun, leikur hún sér að tilfinningu lesandans fyrir því hvað sé raunverulegt og hvað ekki. Þannig kallar hún fram þann óhug sem kraumar rétt undir […]
Krakkabíó

Krakkabíó á aðalsafni Bókasafns Kópavogs í vetrarfríinu 22. og 23. október. Bíóið hefst báða daga kl. 11 og verður í tilraunastofunni á 1. hæð. Komum saman í kósý stund og horfum á skemmtilega teiknimynd. Frítt inn og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Bækurnar á náttborðinu | Lindasafn

Á fundinum 21. október tökum við fyrir bókina Ósmann eftir Joachim B. Schmidt. Um aldamótin 1900 voru mörg stórfljót landsins enn óbrúuð og fólk reiddi sig víða á ferjumenn til þess að komast yfir illfær og óútreiknanleg fallvötnin. Einn þeirra var Jón Ósmann sem flutti menn og skepnur yfir Héraðsvötn um fjögurra áratuga skeið. Jón […]
Aðventusamvera aðdáendaklúbbs Jane Austen

Aðdáendaklúbbur Jane Austen á Íslandi boðar til aðventusamveru á Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 3. desember kl. 17.30-19.00. Fróðleiksmolar: Ljúf samvera, léttar veitingar og lifandi tónlist. Tækifæri til að klæðast að stíl Jane og setja upp hattana. Opinn og ókeypis viðburður. Öll hjartanlega velkomin.
Aðventutónleikar Tónlistarskóla Kópavogs

Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs spila ljúfa jólatónlist fyrir gesti og gangandi á 1. hæð aðalsafns miðvikudagana 2. desember, 9. desember og 16. desember kl. 16:00. Piparkökur og hugguleg stemning. Öll velkomin!