Sverrir Norland | Bókmenntaklúbburinn Hananú
Sverrir Norland rithöfundur heimsækir bókmenntaklúbbinn Hananú og segir frá bókinni Kletturinn sem kom út nýverið. Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú! Viðburðurinn fer fram á 1. hæð aðalsafns. Öll velkomin og heitt á könnunni. […]
Fíflast með fíflum | Sýningaleiðsögn
Leiðsögn Önnu Henriksdóttur um sýningar Listahóps Hlutverkaseturs á Bókasafni Kópavogs, Náttúrufræðistofu og Gerðarsafni. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. —– Á Bókasafni og Náttúrufræðistofu sýnir Listahópur Hlutverkaseturs verk sem unnin eru út frá hugmyndum um fíflablóm en einnig um þá gleði að fíflast. Myndverk, skúlptúrar, bækur, hannyrðavörur og fleira. Við […]
Skiptimarkaður fyrir hrekkjavökubúninga
Verið velkomin á búningaskiptimarkað á hrekkjavökunni! Á aðalsafni verður hægt að skiptast á hrekkjavökubúningum í öllum stærðum og gerðum. Gefðu gömlum búningum framhaldslíf og taktu með þér annan í staðinn. Þeir búningar sem ekki fá nýtt heimili verða gefnir góðgerðarsamtökum.
Haustfrí í Kópavogi
Skemmtileg dagskrá á Bókasafni Kópavogs og í Gerðarsafni í tilefni af haustfríi. Hrekkjavökuföndur og hryllingssögustund, bókamerkjasmiðja og búningaskiptimarkaður, krakkajazz og krakkaleiðsögn. Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis. Fimmtudagur 26/10 Bókasafn Kópavogs kl. 11– BókamerkjasmiðjaLitrík og leikandi, skrýtin og skemmtileg. Búum saman til bókamerki úr pappírsbroti. Bókasafn Kópavogs kl. 12:15– FjölskyldujazzHádegistónleikar fyrir […]
Ritsmiðja fyrir skúffuskáld
Lumar þú á sögum, minningum eða ljóðum sem þig langar að gera eitthvað meira með en skortir hugrekki til að draga fram í dagsljósið? Þá er tækifærið núna á Bókasafni Kópavogs. Námskeið í skapandi skrifum fyrir skúffuskáld verður haldið í Huldustofu á aðalsafni í nóvember. Ritsmiðjunni er ætlað að hvetja einstaklinga til að skrifa og […]
Óróasmiðja á Lindasafni
Í tilefni hrekkjavökunnar framundan verður boðið upp á fjöruga smiðju á Lindasafni þar sem leðurblökur, köngulær, draugar, ógurleg grasker og skrímsli fá að svífa um loftin blá. Allur efniviður á staðnum og hægt verður að taka óróann með sér heim að smiðju lokinni. Smiðjan er tilvalin fyrir börn og fjölskyldur. Aðgangur er ókeypis og öll […]
Jólapeysusmiðja með Fab Lab
Bókasafn Kópavogs í samstarfi við Fab Lab Reykjavík, býður til notalegrar jólapeysusmiðju. Komið með eigin flíkur og skreytið þær með ímyndunaraflið að vopni. Skreytingaefni (textílvínyll) og verkfæri verða á staðnum en gestir eru beðnir um að koma með eigið efni, peysur eða boli. Börn koma í fylgd með fullorðnum og efnið sem á að hitapressa […]
Matjurtaspjall á Lindasafni
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur leiðir matjurtaspjall á Lindasafni, þriðjudaginn 3. október kl. 17. Langar þig að rækta þitt eigið grænmeti? Var uppskeran ekki alveg í takt við væntingar? Ertu grænmetishvíslari? Sama hvar þú stendur í ræktun þá er matjurtaspjallið fyrir þig. Síðasta vor hófst tilraunarækt á matjurtum hjá Bókasafni Kópavogs sem hluti af sjálfbærnistefnu safnsins. Við […]
Hádegisdjass með söngdeild FÍH
Notaleg vetrarsveifla með Berglindi Ragnarsdóttur og Vigdísi Þóru Másdóttur.
Hádegisdjass með söngdeild FÍH
Notaleg djassstund með tónlistarfólki framtíðarinnar.
Hádegisdjass með söngdeild FÍH
Notaleg djassstund með tónlistarfólki framtíðarinnar.
Hannyrðaklúbburinn Kaðlín
Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og allir velkomnir! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.