Plöntuskiptimarkaður

Hefur þú fengið leið á blómunum í stofunni? Vantar þig nýja plöntu í eldhúsið? Komdu með pottaplöntu(r), blóm og/eða afleggjara á aðalsafn og sjáðu hvort þú finnir eitthvað spennandi í staðinn. Inni-og útiblóm velkomin. Plöntuskiptamarkaðurinn verður uppi 1.-5. september og á lokadeginum, laugardaginn 5. sept. verður Garðyrkjufélag Ísland einnig með plöntuskiptidag fyrir utan safnið.
Plöntuskiptidagur Garðyrkjufélags Íslands

Árlegur plöntuskiptidagur Garðyrkjufélags Íslands fer fram við aðalsafn, fyrir utan barnadeildina á 1. hæð, laugardaginn 5. september kl. 12-14. Komdu með pottaplöntur og afleggjara, inniblóm og útiblóm, stór og smá og taktu plöntu með þér heim í staðinn. Allt grænt og vænt velkomið!
Uppskeruhátíð sumarlesturs

Hin árlega uppskeruhátíð sumarlesturs verður fimmtudaginn 20. ágúst kl. 17.00 á 1. hæð aðalsafns (barnadeild). Gunnar Helgason stuðbolti og rithöfundur mætir á aðalsafn og allir krakkar sem koma fá glaðning! Fimm heppnir vinningshafar verða dregnir út úr öllum happamiðum sumarsins. Hlökkum til að sjá alla sumarlestrarhesta!
Langleggur og Skjóða í Lindaskógi

Langleggur og Skjóða eru systkini jólasveinanna og kunna margar skemmtilegar sögur úr Grýluhelli. Þau hafa heldur betur slegið í gegn síðustu ár og heimsækja hinar ýmsu jólaskemmtanir með glænýja jólasögu á hverju ári. Í ár segir Skjóða frá því þegar hún og Rófa litla systir hennar fengu það mikilvæga verkefni að sækja hið fullkomna jólatré […]
Einfaldlega klassík | Hildigunnur Einarsdóttir

Mezzósópransöngkonan Hildigunnur Einarsdóttir er gestur Magnúsar Lyngdal í Einfaldlega klassík að þessu sinni. Hildigunnur hefur um árabil verið í fremstu röð íslenskra söngvara á sviði sígildrar tónlistar og var á þessu ári ráðin ein af fyrstu sex fastráðnu söngvurunum við hina nýstofnuðu óperu. Hildigunnur lauk söngnámi frá Söngskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi […]
Málverkasýning barna í leikskólanum Álfaheiði

„Þar sem stjörnukisar og gimsteinaeinhyrningar mæta Stitch, flugvélavélmennum og kappakstursbílum“ Sýning á málverkum barna í leikskólanum Álfaheiði Velkomin á sýningaropnun föstudaginn 14. ágúst kl. 15:00 í Barnadeild Bókasafns Kópavogs, 1. hæð. Málverk og blönduð tækni, unnin af börnum í leikskólanum Álfaheiði síðastliðið vor. Börnin eru fædd á árunum 2020-2023 og af öllum deildum leikskólans. Viðfangsefni […]
Kartöflustimplar á Lindasafni

Við breytum einfaldri kartöflu í prentstimpil og búum til litrík mynstur og skemmtileg listaverk. Kartöfluprent er auðvelt, skemmtilegt og hentar öllum aldri. Allur efniviður er á staðnum og þátttaka er ókeypis. Öll eru hjartanlega velkomin á Lindasafn. Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar […]
Jólasprettikort

Reddaðu jólakortunum snemma! Þátttakendur læra einfaldar aðferðir til að búa til „pop-up“-kort (sprettikort) og uppgötva hvernig pappírsbrot, klipp og litir geta breytt flötum pappír í litla heima sem spretta fram. Umsjón með smiðjunni hefur Iva Franjic. Smiðjan fer fram á íslensku og ensku auk þess sem aðstoð býðst á króatísku. Smiðjan hentar öllum aldri og allur efniviður er á staðnum. Aðgangur […]
Jaðarsettar raddir og bókmenntir

Rithöfundarnir Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Eva Rún Snorradóttir verða gestir Bókasafns Kópavogs í Menningu á miðvikudögum 9. september og ræða jaðarsettar raddir og bókmenntir. Halla og Eva Rún standa að bókmenntahátíðinni Queer Situations, sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir metnaðarfulla dagskrá og áherslu á hinsegin bókmenntir og verk sem standa utan meginstraumsins. Viðburðurinn er hluti af verkefninu Bókasafn fjölbreytileikans, sem nýtur […]
Bókbandssmiðja

Komdu og lærðu undirstöðuatriði bókbands í fjölskyldusmiðju á Bókasafni Kópavogs. Við lærum um pappír, brjótum saman síður, búum til kápu og saumum saman okkar eigin litlu bók með einfaldri bókbandstækni. Allur efniviður er á staðnum og þú tekur bókina þína með þér heim að smiðju lokinni. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Ath. að notaðar verða […]
Sögustund með Götuleikhúsi Kópavogs

Unglingar í Götuleikhúsi Kópavogs heimsækja Bókasafn Kópavogs og lesa fyrir yngstu kynslóðina.Við bjóðum allar fjölskyldur hjartanlega velkomnar. Frítt inn. Um Götuleikhús Kópavogs:Götuleikhús Kópavogs byggir á sköpun fyrir alla. Áherslan hefur verið hjá Götuleikhúsinu að hugsa út fyrir rammann og útbúa verk fyrir alla aldurshópa í Kópavogi. Síðan í júní hafa leikararnir skrifað handrit, búið til […]
Drag sögustund

Vertu með á lítríkri Drag sögustund fyrir yngri krakka! Það verður hafmeyjuþema hjá okkur og lesin verður ,,Júlían er hafmeyja“, margverðlaunuðu myndabókina eftir Jessicu Love sem fagnar ímyndunarafli, sjálfstjáningu og hugrekki til að vera þú sjálfur. Drottningin mun hvetja til spurninga og eftir lesturinn geta börnin heilsað upp á hana og fengið mynd af sér […]