28. jan 13:00 – 15:00

Rappsmiðja Reykjavíkurdætra

Textasmíði og rapp með Röggu og Steinunni á Dögum ljóðsins í Kópavogi.

Ókeypis rappsmiðja með Reykjavíkurdætrum fyrir 9 – 12 ára (4. – 7. bekk). Leiðbeinendur eru Ragga Holm og Steinunn Jónsdóttir í Reykjavíkurdætrum.

Skráning er nauðsynleg. Vinsamlegast sendið nafn og aldur á kolbrunbs@kopavogur.is hjá Bókasafni Kópavogs.

Ragga Holm er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur og hefur gegnt starfi aðstoðarforstöðumanns á frístundaheimili og félagsmiðstöð auk þess sem hún hefur haldið margs konar námskeið fyrir grunnskólabörn, unglingadeildir og menntaskóla. Ragga starfar nú sem útvarpskona á Kissfm 104.5 og hefur verið plötusnúður og rappari í hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum frá árinu 2017. Árið 2018 gaf Ragga einnig út sólóplötuna Bipolar sem hlaut góðar viðtökur.

Steinunn Jónsdóttir stundaði nám í klassískum söng og víóluleik á sínum yngri árum samhliða krefjandi dansnámi í Listdansskóla Íslands. Hún hefur starfað sem tónlistarkona og danskennari frá árinu 2011. Steinunn er einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Amabadama og fyrir texta sína á plötunni Heyrðu mig nú var hún tilnefnd textahöfundur ársins á íslensku tónlistarverðlaununum 2014/2015. Hún hefur mikla reynslu af því að vinna með börnum og því að kenna bæði framkomu og textasmíð.

Hljómsveitin Reykjavíkurdætur kom eins og stormsveipur inn í íslenskt menningarlíf fyrir um áratug og vakti strax mikla athygli fyrir hispurslausa texta, óheflaða framkomu og sérstöðu sína sem hópur kvenna í íslenskri rappsenu. Frá árinu 2013 hefur hljómsveitin komið fram í yfir 20 löndum, spilað á öllum helstu hátíðum og viðburðum hérlendis og unnið til fjölda verðlauna, en má þá helst nefna hin virtu MME verðlaun á Eurosonic og viðurkenningu Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu árið 2019. 

Hljómsveitin hefur síðustu fjögur árin stefnt fleyi sínu á erlend mið en stimplaði sig rækilega inn að nýju í íslenskt tónlistarlíf með þátttöku sinni í Söngvakeppninni 2022. 

Dæturnar hafa á sínum starfsferli gefið út þrjár plötur og fjölda smáskífa auk þess sem þær hafa staðið fyrir námskeiðum í textasmíði og rappi fyrir börn og haldið fyrirlestra bæði hérlendis og erlendis. Meðlimir sveitarinnar eru átta.

Deildu þessum viðburði

21
sep
16
nóv
13:00

Luktasmiðja

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

30
júl
31
júl
06
ágú
07
ágú
12
ágú
17
ágú
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
13
ágú
14
ágú
20
ágú
20
ágú
13:00

Ævintýrasmiðja

Aðalsafn
02
sep
07
sep
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
07
okt
12
okt
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
04
nóv
09
nóv
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað