27. okt 15:00 – 17:00

Opið spjall um tölvuleikjanotkun ungmenna, möguleika og hættur

Aðalsafn | Huldustofa 3. hæð

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Patrekur Gunnlaugsson yfirþjálfari rafíþrótta hjá Fylki og FH verður á svæðinu frá 15 til 17 og býður foreldrum og ungmennum í opið spjall um skipulagt íþrótta- og tómstundastarf í kringum tölvuleiki í víðu og þröngu samhengi. Allt frá samfélagslegu hlutverki slíkrar starfsemi í dag og til framtíðar yfir í tölvuleiki og tölvuleikjanotkun ungmenna, hvaða leikir eru vinsælir, hvað foreldrar geta gert til að styðja börn sín og sýna áhugamáli þeirra áhuga ásamt því að stuðla að líkamlegu og andlegu heilbrigði og félagslegum tengslum.

Tilvalið fyrir foreldra og ungmenni að koma saman og spjalla um tölvuleiki og tölvuleikjanotkun. Nokkrar tölvur verða á svæðinu svo hægt verður að prófa nokkra leiki. 

Patrekur Gunnlaugsson er yfirþjálfari rafíþrótta hjá Fylki og FH. Patrekur er með BSc-gráðu í sálfræði og diplómu í kvikmyndaleiklist. Hann hefur spilað tölvuleiki allt sitt líf og keppt í rafíþróttum á Íslandi. Patrekur leitast við að varpa jákvæðu ljósi á rafíþróttir og hjálpa foreldrum og ungmennum að finna heilbrigt jafnvægi í tölvuleikjanotkun.

Patrekur verður í ungmennadeild á þriðju hæð safnsins í tvo tíma og hægt er að kíkja við í spjall hvenær sem er á tímabilinu. Öll velkomin.

Viðburðurinn er hluti af verkefninu Bókasafnið gegn upplýsingaóreiðu og er styrktur af Bókasafnasjóði.

Deildu þessum viðburði

27
okt
31
okt
08:00

Búningaskiptimarkaður

Aðalsafn
22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
22
okt
23
okt
09:00

Grímusmiðja í vetrarfríi

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
22
okt
23
okt
09:00

Grímusmiðja í vetrarfríi

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
24
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
26
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
26
okt
27
okt
28
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
28
okt
16:30

Myndaspjall

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
28
okt
16:00

Skynjunarsögustund

Aðalsafn | barnadeild
28
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
28
okt
17:00

Höfundaheimsókn | Íris Ösp

Aðalsafn 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað