Á tímabilinu 21. maí til 20. ágúst býður Bókasafn Kópavogs unglingum að taka þátt í sumarlestri.
Fyrir hverja bók sem lesin er eða hlustað er á má fylla út einn happamiða og setja í pott. Hægt er að fylla út miða hér eða á aðalsafni (í ungmennadeild á 3. hæð) og Lindasafni.
Sumarlesturinn á við um allar tegundir bóka, líka rafbækur, hljóðbækur, fræðibækur, teiknimyndasögur og manga. Lesa má bækur á hvaða tungumáli sem er.
Dregið er mánaðarlega úr innsendum happamiðum og fá vinningshafar 10.000 kr. gjafabréf í Nexus.
Sumarlestur unglinga
Innkaupatillaga
Eigum við ekki bókina sem þú ert að leita að?
Láttu okkur vita og við skoðum málið.
Viðburðir og klúbbar fyrir ungmenni
Ertu 13-17 ára?
Hvers konar viðburði eða klúbba vilt þú að bókasafnið bjóði upp á?