Margrét Tryggvadóttir, barnabókahöfundur og Kópavogsbúi, leiðir lestrargöngu um Kópavogsdalinn.
Hún segir frá þeim íslensku barnabókum sem þar er að finna á járnspjöldum og eru þjóðinni hvað kærastar. Frábær hreyfing og lestrarhvatning fyrir alla fjölskylduna! Gangan verður laugardaginn 9. júní og hefst í Leikskólalundi við Digraneskirkju kl. 13.
Kort af göngunni má finna hér.