Hrekkjavökudagskrá menningarhúsanna

Það er sannkölluð Hrekkjavökuveisla í menningarhúsunum í Kópavogi og ættu allir aldurshópar að geta fundið eitthvað hræðilegt við sitt hæfi.

Salurinn fagnar Hrekkjavökunni laugardaginn 31. október með glæsilegri og metnaðarfullri barnaóperu sem nefnist Bálrautt teppi úr Bútasaum og er hluti af Óperudögum 2026. Dásamleg fjölskyldustund og kjörið tækifæri til að kynna börn fyrir töfrum óperunnar. Frítt er inn á sýninguna og öll velkomin. Óperan er sýnd kl. 13 og tekur sýningin um klukkustund.

Á Gerðarsafni verður hrekkjavökuföndur á laugardag og sunnudag. Hægt er að mæta hvenær sem er milli kl. 13 og 16 og föndra eitthvað ógurlegt. Allur efniviður er á staðnum og aðgangur er ókeypis.

Á Bókasafni Kópavogs er að finna búningaskiptimarkað þar sem hægt er að koma með búninga sem þarfnast ástar og nýrra eigenda og hægt að taka með búning í staðinn. Engar kvaðir eru um að koma með búning þótt tekinn sé búningur.

Á laugardaginn slær Bókasafn Kópavogs í Hamraborg svo til heljarinnar hrekkjavökuhátíðar í samstarfi við GETU hjálparsamtök þar sem gestir fá að kynnast hrekkjavökuhefðum frá ólíkum löndum í gegnum smiðjur, matarsmökkun og fleiri skemmtilega viðburði. Hátíðin stendur frá 14 til 17. Frítt er inn og öll hjartanlega velkomin.

Salurinn slær svo botninn í Hrekkjavökuna með tvennum tónleikum söngleikjakórsins Viðlags um Sweeney Todd dagana 31. október og 3. nóvember. Miðasala fer fram á tix.is.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

28
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
28
okt
16:30

Myndaspjall

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
28
okt
16:00

Skynjunarsögustund

Aðalsafn | barnadeild
28
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
28
okt
17:00

Höfundaheimsókn | Íris Ösp

Aðalsafn 2. hæð
29
okt
10:00

Foreldramorgunn

Aðalsafn
29
okt
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
29
okt
16:00

Anime klúbbur fyrir 13-16 ára

Aðalsafn 3. hæð
31
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
02
nóv
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað