Bókasafn Kópavogs er eitt glæsilegasta bókasafn landsins og er einn af máttarstólpum samfélagsins hér í Kópavogi.
Það eru um 800 gestir sem sækja safnið daglega og fer gestum fjölgandi með hverju ári.
Safnið býður upp á fjölda viðburða auk hefðbundinnar þjónustu og hefur verið leiðandi í tækniþróunum til að mynda að bjóða upp á greiðslugátt í gegnum sjálfsafgreiðsluvélar.
Nú hefur enn ein nýjungin bæst við og er þetta í fyrsta sinn á Íslandi sem þessi þjónusta býðst.
Safnið hefur opnað fyrsta Bókaboxið á Íslandi. “Boxið virkar eins og póstboxin sem hafa verið að spretta upp út um allt land á undanförnum árum þar sem hægt er að sækja pakka í box”, segir Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs. Þetta er einföld leið fyrir lánþega safnsins að nálgast nýjustu og vinsælustu bækurnar, en í boxinu verða alltaf tíu nýir titlar, eins er hægt er að skila lánsbókum. Hægt er að taka frá bók og sækja hana í boxið. Bækurnar eru þá fráteknar á leitir.is og kemur starfsfólk bókunum í Bókaboxið. Bókinni verður haldið í fjóra sólarhringa eftir að hún er komin í boxið. “Við erum fyrsta bókasafnið á Íslandi að bjóða þessa viðbótarþjónustu við þá hefðbundnu þjónustu sem er á söfnunum sjálfum og erum við mjög spennt að heyra hvað lánþegum okkur finnst um þessa nýjung.”
Bókaboxið er staðsett í Vallakór 4 (í sama húsi og velferðarsvið Kópavogsbæjar og Krónan) og er opið kl. 9:00-21:00 alla daga vikunnar.