Glæsileg uppskeruhátíð sumarlesturs

Lestrasumrinu 2026 var fagnað á glæsilegri uppskeruhátíð sem haldin var á Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 20. ágúst. Yfir 100 gestir mættu til hátíðarinnar þar sem Gunnar Helgason sá um skemmtun og upplestur. Dregið var úr lukkupottinum og heppnir þátttakendur hlutu bókaverðlaun. Að auki fengu öll börnin fallegan taupoka prýddan mynd af Gloríu bókasafnskisu, sem nýtist jafnt undir bækur sem sunddót.

Boðið var upp á ævintýrapopp og ávaxtavatn. Margir glaðir lestrarhestar héldu heim að lokinni hátíð með verðlaun, góðar minningar og vonandi enn meiri lestraráhuga fyrir komandi vetur.

Bókasafn Kópavogs óskar öllum þátttakendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þakkar börnum og fjölskyldum þeirra fyrir að gera Sumarlesturinn 2026 að jafn eftirminnilegu og farsælu verkefni og raun ber vitni.

Árangur barna í Kópavogi var einstaklega góður í ár en samtals lásu börn í Kópavogi í 2.069 klukkustundir yfir sumarið og var það aukning frá því í fyrra þegar lesnar voru 1.919 klukkustundir. Til samanburðar þá er líkt og börn í Kópavogi hefðu lesið í 345 skóladaga samfellt, m.v að skóladagurinn sé sex klukkustundir. Þessi frábæri árangur sýnir vel þann lestraráhuga og eldmóð sem býr í ungu lestrarfólki Kópavogs. Eitt af því sem Bókasafn Kópavogs þakkar þennan lestraráhuga barna er samstarf við skólasöfnin, en öll börn á aldrinum 5-12 ára fengu afhent lestrarvegabréfið í skólanum sínum á vordögum.

Sumarlesturinn var samstarfsverkefni almenningsbókasafna og naut stuðnings Bókasafnasjóðs, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Félags fagfólks á almenningsbókasöfnum (FFÁS), Sambands forstöðumanna almenningsbókasafna (SFA) og fleiri samstarfsaðila.

Í sumar fengu börn sérstakt vegabréf þar sem þau fylgdust með ferðalagi Gúnda geithafurs um landakort fullt af spennandi áfangastöðum. Markmiðið var að lesa í að minnsta kosti 15 mínútur á dag og merkja við framvindu sína á leiðinni. Fyrir hverja klukkustund af lestri fengu börnin stimpil eða límmiða í vegabréfið sitt ásamt happamiða til að setja í lukkupott. Verkefnið hvatti börnin til að lesa reglulega yfir sumarmánuðina og gerði lesturinn að skemmtilegu ævintýri.

Hér að neðan má sjá myndir frá uppskeruhátíðinni og vinningshöfum sumarsins.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

26
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
26
okt
27
okt
28
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
28
okt
16:30

Myndaspjall

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
28
okt
16:00

Skynjunarsögustund

Aðalsafn | barnadeild
28
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
28
okt
17:00

Höfundaheimsókn | Íris Ösp

Aðalsafn 2. hæð
29
okt
10:00

Foreldramorgunn

Aðalsafn
29
okt
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
29
okt
16:00

Anime klúbbur fyrir 13-16 ára

Aðalsafn 3. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað