Bókasafn Kópavogs fær samtals 5,1 milljón króna styrkveitingar

Bókasafn Kópavogs hefur á undanförnum vikum tekið á móti 5,1 milljón krónum í styrkveitingar fyrir hin ýmsu verkefni sem fara fram innan veggja bókasafnsins og miða að því að auka þjónustu við lánþega og aðra gesti.

400.000 kr. úr Íslenskusjóði Háskóla Íslands fyrir  Tala og spila

„Markmið Íslenskusjóðsins er að veita styrki til að efla vald á íslensku máli meðal barna og fullorðinna, einkum fjöltyngdra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra.“

Verkefnið Tala og spila hefur verið rekið á Bókasafni Kópavogs í samstarfi við GETU hjálparsamtök þar sem fólk getur komið saman í afslöppuðu umhverfi og æft sig í íslensku með aðstoð íslenskukennara á sama tíma og það grípur í spil. Viðburðaröðin hefur verið vel sótt og mikið gleðiefni að hægt sé að halda henni áfram. Að þessu sinni viljum við sérstaklega bjóða fjölskyldum að mæta og njóta þess að læra íslensku saman og um leið njóta skemmtilegrar samverustundar.   

500.000 kr. úr Barnamenningarsjóði fyrir þróun á sögustundum

„Hlutverk Barnamenningarsjóðs er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.“

Sögustundir á Bókasafni Kópavogs hafa tekið á sig ævintýralegan blæ sl. vetur en Eyrún Ósk, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, og Gréta Björg, deildarstjóri barnastarfs, hafa þróað svokallaðar skynjunarsögustundir, þar sem þær hafa bætt við hljóðum, leikmunum og gætt sögupersónur lífi með leikrænum tilburðum, hljóðfærum og brúðum. Sögustundirnar hafa gengið afar vel og börn sem hafa vanalega ekki eirð í sér til að sitja og hlusta verið sem dolfallin. Því er ánægjulegt að geta haldið áfram að þróa þessar sögustundir.

1.200.000 kr. úr Bókasafnasjóði fyrir viðburðaröðina Bókasafnið gegn upplýsingaóreiðu

,,Hlutverk Bókasafnasjóðs er að efla starfsemi bókasafna.“

Bókasafnið er staður þar sem upplýsingar eru geymdar, samkvæmt skilgreiningu Wikipedia en í heimi þar sem upplýsingaóreiða er vaxandi vandamál, er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að miðla réttum upplýsingum. Við ætlum að setja af stað nýtt verkefni, sem miðar að því að vinna gegn upplýsingaóreiðu samtímans og hjálpa lánþegum okkar að finna réttar, áreiðanlegar og sannar upplýsingar með því að bjóða upp á áhugaverð erindi, námskeið og útbúa aðgengilegar upplýsingar tengt upplýsingalæsi.

3.000.000 kr. úr Bókasafnasjóði fyrir kynningarátaki almenningsbókasafna

Bókasafn Kópavogs sótti um styrk hjá Bókasafnasjóði fyrir samvinnuverkefni almenningsbókasafna á Íslandi til að framleiða og fara af stað með kynningarátak almenningsbókasafna. Markmiðið er að auka vitund fólks um bókasafnið sem fastan punkt í nærsamfélaginu, bæði til að auka lestraráhuga en einnig sem samkomustaður og menningarhús. Með kynningarátaki geta bókasöfnin skipað sér sess sem mikilvægur þáttur í daglegu lífi fólks í nærumhverfinu, þar sem öll eru velkomin.

©Kristinn Ingvarsson
Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs tekur við styrk frá Íslenskusjóðnum

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

12
jún
17:00

Alþjóðlegur dagur jóga

Aðalsafn
13
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
16
jún
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
18
jún
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
18
jún
15:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
20
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
23
jún
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
24
jún
25
jún
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
25
jún
15:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
27
jún
11:00

Get together

Aðalsafn

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán
8-18
17. júní
11-17
mið-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán
13-18
17. júní
Lokað
mið-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán
8-18
17. júní
11-17
mið-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán
13-18
17. júní
Lokað
mið-fös
13-18
lau-sun
Lokað