Aðalsafn Bókasafns Kópavogs verður lokað dagana 5. til 19. janúar næstkomandi. Skipta á út gólfefni í húsinu og ekki er unnt að hafa opið fyrir gesti á meðan á því stendur.
Síðustu opnunardagar fyrir framkvæmdir verða 2. janúar kl. 8-18 og 3. janúar kl. 11-17. Við hvetjum bókþyrsta til að kíkja við og ná sér í góðan stafla á náttborðið meðan færi gefst!
Lindasafn stendur vaktina á meðan ásamt Bókaboxinu okkar í Vallakór þar sem hefðbundnir opnunartímar gilda.
Allir skiladagar hafa verið færðir svo engar bækur frá aðalsafni safna sektum yfir lokunartímabilið og við biðlum til lánþega að hafa bækurnar heima ef kostur er. Heimilt verður þó að skila bókum á aðalsafn í anddyrið á 1. hæð (jarðhæð). Þá má auðvitað skila á Lindasafni, í Bókaboxið, Hafnarfjörð og Garðabæ líkt og endranær en við áréttum að enginn flýtir er á skilum á bókum frá aðalsafni.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda en hlökkum til að taka á móti ykkur að framkvæmdum loknum.










