Bókasafn Kópavogs hlaut tvo styrki fyrir bókasafn fjölbreytileikans og sumarlestur

Bókasafn Kópavogs hlaut á dögunum 3.750.000 kr. styrkveitingu úr Bókasafnasjóði frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Um tvo styrki var að ræða.

Forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, Lísa Z. Valdimarsdóttir tók á móti styrkjunum, en hún tilkynnti einnig um styrkina sem varaformaður Bókasafnaráðs.

Bókasafn fjölbreytileikans 1.200.000 kr.

Bókasafn er meira en bara bókasafn, það er menningar- og samfélagsmiðstöð þar sem öll eru velkomin, óháð uppruna, kyni, kynhneigð, færni eða bakgrunni. Bókasafn fjölbreytileikans er átaks- og þróunarverkefni sem miðar að því að fagna fjölbreytileikanum á öllum sviðum og bregðast við því bakslagi sem margir jaðarsettir hópar hafa mætt í réttindabaráttu sinni.

Sumarlestur 2.550.000 kr.

Verkefnið felst í því að efla áhuga barna á yngsta og miðstigi grunnskóla á lestri yfir sumarmánuðina með sameiginlegu landsátaki bókasafna. Til að styðja við átakið verður sett upp sérstök undirsíða fyrir sumarlestur á vefnum Bokasofn.is. Þar verður hægt að nálgast sameiginlegt efni, verkefni, hugmyndabanka og upplýsingar sem öll bókasöfn landsins geta nýtt sér.

Í matsnefnd Bókasafnasjóðs fyrir úthlutanir úr sjóðnum árið 2026 sátu eftirfarandi fulltrúar úr Bókasafnaráði: Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar (formaður). Njörður Sigurðsson og Örn Hrafnkelsson.

Sjá nánar á vefsíðu Stjórnarráðsins: Stjórnarráðið | Úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði og Bókasafnssjóði 2025

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

14
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
14
okt
16:30

Myndgreining

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
14
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
15
okt
10:00

Foreldramorgunn

Aðalsafn
15
okt
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
17
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
17
okt
13:00

Bókbandssmiðja 

Aðalsafn barnadeild
19
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
20
okt
21
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað