Aukin þjónusta fyrir lánþega

Samstarfssamningur Bókasafns Garðabæjar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Bókasafns Kópavogs í gildi. Aukið samstarf í byrjun árs, skil á gögnum á hvaða safni sem er og sameiginlegir viðburðir. 
Samstarfssamningur Bókasafns Garðabæjar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Bókasafns Kópavogs
Haustið 2017 endurnýjuðu Bókasafn Garðabæjar, Bókasafn Hafnarfjarðar og Bókasafn Kópavogs samstarfssamning sinn til næstu ára, en samstarfið hófst árið 2005. Forstöðumenn safnanna undirrituðu samninginn á sínum tíma, en í honum felst að lánþegar safnanna mega nýta skírteini sín hjá báðum hinum samstarfssöfnunum. Þetta eru fimm starfsstöðvar í allt – ein í Hafnarfirði og tvær bæði í Kópavogi og Garðabæ. „Því hafa lánþegar aðgang að söfnum sem dreifast á stórt svæði og samanlögðum safnkosti allra bæjarfélaganna, en greiða árgjaldið bara á einum stað,“ segja forstöðumennirnir Lísa Z. Valdimarsdóttir í Kópavogi, Margrét Sigurgeirsdóttir í Garðabæ og Óskar Guðjónsson í Hafnarfirði.
Skil á gögnum á hvaða safni sem er
Í byrjun þessa árs tóku forstöðumenn safnanna ákvörðun um að auka samstarfið enn frekar með því að bjóða lánþegum að skila gögnum sem þeir eru með í láni á hvaða samstarfssafni sem er. „Þetta þýðir að lánþegi sem fær lánuð gögn hjá okkur getur valið um það hvort hann hann skilar þeim hjá okkur í Kópavogi, í Garðabæ eða Hafnarfirði,“ segir Lísa. „Öll söfnin eru með lánþega sem búa í öðru af hinum sveitarfélögunum og því þykir okkur sjálfsagt mál að auka þjónustuna enn frekar,“ bætir Lísa við. Um er að ræða tilraunaverkefni til sex mánaða og hefst það um mánaðarmótin janúar/febrúar.
Sameiginlegir viðburðir
Auk samstarfs um aukna þjónustu í skilum á gögnum munu söfnin þrjú taka sig saman og standa reglulega fyrir sameiginlegum erindum og fræðslu. Sölvi Tryggvason sjónvarpsmaður mun halda fyrsta erindið um betri heilsu og innihaldsríkara líf. Erindið mun fara fram á öllum þremur söfnunum. Mánudaginn 4. febrúar mun Sölvi koma á Bókasafn Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 5. febrúar á Bókasafn Garðabæjar og þriðjudaginn 12. febrúar á Bókasafn Kópavogs. Öll erindin fara fram kl. 17:00 og er aðgangur ókeypis.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

05
nóv
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
05
nóv
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
05
nóv
12:15

Leslyndi | Kristín Helga Gunnarsdóttir

Aðalsafn | ljóðahorn
06
nóv
10:00

Skynjunarleikur

Aðalsafn | 1. hæð
06
nóv
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
06
nóv
12:00

Opni leikskólinn Memmm

Aðalsafn | barnadeild 1. hæð
08
nóv
13:00

Óróasmiðja

Lindasafn
08
nóv
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
10
nóv
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
11
nóv
12
nóv
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
12
nóv

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað