Dagný Hermannsdóttir textílkennari heimsækir hannyrðaklúbbinn Kaðlín og segir frá vettlingahefðum Letta. Einnig kemur hún með allnokkur vettlingapör sem hægt er að skoða og handfjatla.
Í Lettlandi sköpuðust einstakar hefðir í vettlingaprjóni. Konur lögðu gríðarlegan metnað í að hanna og prjóna einstaka vettlinga, munstrin voru fjölbreytt og mismunandi hefðir sköpuðust milli héraða. Í Lettlandi hafa varðveist ótrúlega fjölbreytt og mörg vettlingamunstur og enn í dag eru vettlingar mikils metnir þar í landi.
Dagný er textílkennari að mennt og forfallin prjónakona. Hún hefur farið í nokkrar prjónaferðir til Lettlands, fyrst til að sækja námskeið og svo einnig sem fararstjóri.
Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist á aðalsafni alla miðvikudaga. Heitt á könnunni og öll velkomin.