Við opnum skilningarvitin okkar mjúklega á þessum fyrsta sunnudegi í aðventu. Við leggjum áherslu á ilminn sem fylgir jólahátíðinni og förum skapandi höndum um þann náttúrulega efnivið sem við getum fundið í nærumhverfinu á þessum árstíma.
Ó!Rói er skapandi smiðja fyrir börn og fjölskyldur þeirra með hönnunarteyminu ÞYKJÓ.
Við óróagerð æfum við sjálfa jafnvægislistina og lærum hvernig ólíkir hlutir geta myndað eina samhangandi heild.
Smiðjan hentar börnum í fylgd fullorðinna frá 4 ára aldri og fer fram á Bókasafni Kópavogs sem hluti af aðventudagskrá Menningarhúsanna.