Ljúfir tónleikar með framhaldsnemendum af söngdeild Tónlistarskóla FÍH, síðasta fimmtudag hvers mánaðar. Lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli, sveifla og sving, stuð og stemning.
Á sumardaginn fyrsta munu Rán Ragnars og Vigdís Þóra Másdóttir syngja inn sumarið á Bókasafni Kópavogs ásamt Guðmundi Grétars á gítar. Farið verður um víðan völl í lagavali en lögin verða öll sungin á íslensku og gefa von um sólríkt og ljúft sumar. Þær stöllur lofa afslappaðri sumarstemningu og sól í hjarta.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Tónleikarnir fara fram á annarri hæð Bókasafns Kópavogs.