Fræðsluerindi um erfðarétt og erfðamál með Elísabet Pétursdóttur, lögmanni hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar
Elísabet mun fara yfir ýmis hagnýt atriði er varða erfðarétt. Meðal þess sem farið verður í, er hvenær heimild fæst til setu í óskiptu búi og hvað sá sem situr í óskiptu búi má gera meðan búinu hefur ekki verið skipt. Þá er farið yfir hvaða reglur gilda um fyrirframgreiddan arf, hver munurinn er á einkaskiptum og opinberum skiptum á dánarbúum, hverjir taka arf eftir hinn látna og ýmis atriði tengd erfðaskrám. Tími gefst til almennra fyrirspurna og umræðu um efnið.
Viðburðurinn fer fram á aðalsafni.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.