Glæpafárið nær hápunkti í aðdraganda Bókasafnsdagsins og dags læsis fimmtudaginn 5. september. Þá verður blásið til laufléttrar og skemmtilegrar en þó skuggalega spennandi spurningakeppni um íslenskar glæpasögur samtímis á almenningsbókasöfnum víðsvegar um landið og tekur Bókasafn Kópavogs að sjálfsögðu þátt.
Vinningsliðið fær glæpsamlega góða bók í verðlaun, ásamt niðurfellingu uppsafnaðra sekta. Hin ofurskemmtilega og eitursvala Vigdís Másdóttir verður spyrill kvöldsins.
Keppnin er samin af nokkrum ákaflega vafasömum félögum í Hinu íslenska glæpafélagi. Öll velkomin.
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Glæpafár á Íslandi á vegum Hins íslenska glæpafélags í samstarfi við almenningsbókasöfn landsins til að fagna 25 ára afmæli félagsins