Gestur fundarins að þessu sinni er Steinn Kárason sem mun ræða nýjustu bók sína, Glaðlega leikur skugginn í sólskininu.
Bókmenntaklúbburinn Hananú! hittist í fjölnotasal á aðalsafni miðvikudaginn 5. október.
Ert þú 60+ ára? Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú!
Fylgist með í Facebook-hópnum Bókmenntaklúbburinn Hananú | Bókasafn Kópavogs.