Nanna Rögnvaldardóttir mun heimsækja bókmenntaklúbbinn Hananú miðvikudaginn 3. apríl kl. 16:00 og fjalla um skáldsögu sína Valskan.
Valskan er fyrsta skáldsaga Nönnu Rögnvaldardóttur sem áður hefur skrifað fjölda bóka um matargerð og matarsögu. Frásögnina byggir hún á lífi formóður sinnar, Valgerðar Skaftadóttur, sem fædd var árið 1762. Heimildum og skáldskap er fléttað saman svo úr verður grípandi saga um harða lífsbaráttu en líka óvæntar lausnir, þrautseigju og ástir.
Léttar veitingar, öll velkomin.
Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú!
Fylgist með í Facebook-hópnum Bókmenntaklúbburinn Hananú | Bókasafn Kópavogs.