08. apr 16:00 – 17:30

Kona á buxum | Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Auður Styrkársdóttir verður gestur okkar á Bókasafni Kópavogs og í bókmenntaklúbbnum Hananú og segir okkur frá bók sinni Kona á buxum: Nokkrar furður úr ævi Þuríðar formanns.

Viðburðurinn er hluti af verkefninu LÆSI Á STÖÐU OG BARÁTTU KVENNA | Samstarfsverkefni almenningsbókasafna um land allt í tilefni Kvennaárs 2025
Bókasafnasjóður veitti styrk til verkefnisins.

Heimildaskáldsaga um Þuríði formann á Stokkseyri sem varð strax á barnsaldri dugandi sjómaður og gekk uppkomin á buxum. Hún fór ótroðnar slóðir og varð fræg fyrir að koma óvænt upp um illræmda glæpamenn í Flóanum. Höfundur sem á sér langa sögu í heimi fræða hefur kafað djúpt í heimildir um Þuríði sem um tíma gekk undir nafninu Þormóður.Hegri! hrópar Þuríður og bendir til lands.

Bátsverjar líta upp en hætta samt ekki sínum taktfasta róðri. Þeir sjá allir það sama: stór, gráhvítur fugl goppar í fjöruborði. Hann breiðir út langa vængi eins og hann ætli að hefja sig til flugs, leggjalangur og álappalegur. Svo heggur hann niður sínum langa og beitta goggi í æti. Hegri í fjöru er lukkumerki fyrir fiskimenn; hann boðar gott fiskiár, góða vertíð.

Mennirnir róa áfram og nú svolítið og dálítið léttari í bragði.

Þuríður litla sýnist ætla að verða þeim til lukku. Það er gott að hafa kvenfólk á skipi; það góða fólk færir mönnum góðan afla. Það vita allir.

Auður Styrkársdóttir starfaði sem blaðamaður, ritstjóri og kennari, var lengi forstöðukona Kvennasögusafns Íslands en kallar sig nú pensjónista. Árið 2019 sendi hún frá sér bókina Helga saga sem vakti mikla athygli. Hér skáldar hún í sögu Þuríðar formanns sem gekk á buxum og kom óvænt upp um illræmda glæpamenn í Flóanum.

Bókmenntaklúbburinn Hananú! hittist í Huldustofu á 3. hæð aðalsafns. 

Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú!

Fylgist með í Facebook-hópnum Bókmenntaklúbburinn Hananú | Bókasafn Kópavogs.

Deildu þessum viðburði

03
sep
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
16
sep
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
30
sep
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
01
okt
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
14
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
28
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
05
nóv
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
11
nóv
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
25
nóv
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
sep
05
sep
08:00

Plöntuskiptimarkaður

Aðalsafn
02
sep
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
02
sep
03
sep
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
03
sep
17:00

Hauströlt um menningarhúsin

Gerðarsafn | Náttúrusafn | Bókasafn | Salurinn
04
sep
11:00

Get together

Aðalsafn
05
sep
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
08
sep
10
sep
19
sep
08:00

Útifataskiptimarkaður

Aðalsafn
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað