25. jan 11:00 ~ 01. feb 17:00

Fataskiptimarkaður | Nýtnivika

Aðalsafn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

25. janúar til 1. febrúar verður fataskiptimarkaður á bókasafninu í tilefni af nýtniviku.

Komdu með gömul föt sem þú notar ekki lengur en geta nýst öðrum og taktu þér eitthvað annað í staðinn. Það má bæði skilja eftir og taka föt, án allra kvaða.

Við biðjum fólk um að koma eingöngu með heilleg og hrein föt sem geta nýst öðrum. Slitin föt geta farið í gáma þar sem þau eru endurnýtt.

Nýtnivika verður á Bókasafni Kópavogs dagana 25. janúar – 1. febrúar. Margt verður í boði sem snýr að endurnýtingu og sjálfbærni. Við hvetjum öll til að skoða spennandi dagskrá safnsins þessa viku því margt er í boði og huga að umhverfinu í leiðinni.

Dagskrá á nýtniviku

Fataskiptimarkaður
25. janúar – 1. febrúar
Komdu með gömul föt sem þú notar ekki lengur en geta nýst öðrum og taktu þér eitthvað annað í staðinn. Það má bæði skilja eftir og taka föt, án allra kvaða.

Reddingakaffi
Laugardaginn 25. janúar kl. 13-16
Reddingakaffi eru ókeypis fundarstaðir sem snúast um að gera við hluti (saman). Á bókasafninu verða 10 sjálfboðaliðar frá Hringrásarsetri Íslands sem aðstoða við viðgerðir á reiðhjólum, rafmagnstækjum, textíl / fötum og tækjum. Gestir koma með brotna hluti að heiman. Ásamt sérfræðingum hefja þeir viðgerðir sínar í Reddingakaffi.

Fatanýting
Þriðjudaginn 28. janúar kl. 17-18
Hvernig getum við endurnýtt og breytt gömlum fötum? Sigríður Tryggvadóttir mun í þessum fyrirlestri fræða okkur um sjálfbærni, hægtísku og endurnýtingu á fatnaði.

Matarnýting
Fimmtudaginn 30. janúar kl. 17-18
Viltu læra að nýta afganga og mat betur? Guðrún Sigurgeirsdóttir ætlar að kenna okkur um nýtingu matvæla og gefa okkur hugmyndir að því hvað við getum eldað úr ísskápnum og þannig hjálpa okkur að minnka matarsóun.

Viltu einfalda lífið með KonMari aðferðinni?
Fimmtudaginn 30. janúar kl. 18-19
Viltu taka til og skipuleggja lífið með KonMari aðferðinni? Lísa Z. Valdimarsdóttir fer yfir grunnhugmyndina að baki aðferðinni, hvernig við getum nýtt hana á heimilinu og lífinu og sýnt hvernig föt eru brotin saman með aðferðinni.

Dagsetningar

25.jan

11:00 ~ 17:00

27.jan

08:00 ~ 18:00

28.jan

08:00 ~ 18:00

29.jan

08:00 ~ 18:00

30.jan

08:00 ~ 19:00

31.jan

08:00 ~ 18:00

01.feb

11:00 ~ 17:00

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
des
23
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinsins

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
23
des
08:00

Jólafataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
20
des
11:00

Langleggur og Skjóða í Lindaskógi

Lindasafn | Lindaskógur
22
des
23
des
10:00

Jólakósídagar

Aðalsafn | 1. hæð
02
jan
11:00

Get together

Aðalsafn
07
jan
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
07
jan
08
jan
15:00

Lesið á milli línanna

Lindasafn
09
jan
11:00

Get together

Gerðarsafn
10
jan
11:30

Lesið fyrir hunda

Lindasafn
14
jan

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað