16. mar ~ 11. apr

Gísli J. Ástþórsson Aldarminning

Aðalsafn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Verið velkomin á sýningu um ævi og störf Gísla J. Ástþórssonar á aðalsafni Bókasafns Kópavogs.

Gísli J. Ástþórsson (1923-2012) var þekktur á sinni tíð sem blaðamaður, ritstjóri, rithöfundur, pistlahöfundur og teiknari. Gísli lærði blaðamennsku í háskóla í Bandaríkjunum árin 1943-45 og var sennilega fyrsti menntaði íslenski blaðamaðurinn. Gísli sló nýjan tón í blaðamennsku á Íslandi og lagði áherslu á fréttaflutning óháð flokkspólitík.

Gísli var fjölhæfur listamaður og eftir hann liggja skáldsögur, smásögur, barnabók, leikrit og útvarpsþættir. Hann varð þekktur fyrir myndasögubækurnar um Siggu Viggu sem sprottnar eru úr íslenskum veruleika, útgerð og fiskvinnslu og segja frá lífi fiskvinnslustúlkunnar Siggu Viggu, vinkonu hennar Blíðu og samstarfsfólks. Sögurnar birtust fyrst í Alþýðublaðinu og svo í Morgunblaðinu. Gísli teiknaði einnig ádeiluseríuna Þankastrik sem birtist í Morgunblaðinu sem athugasemdir um atburði líðandi stundar og vakti serían iðulega mikil viðbrögð.

100 ár verða liðin frá fæðingu Gísla þann 5. apríl 2023 og af því tilefni blésu afkomendur hans í samvinnu við Bókasafn Kópavogs til sýningar þar sem leitast verður við að gera rithöfundinum, blaðamanninum og teiknaranum Gísla J. Ástþórssyni skil. Samhliða sýningunni kom út heildarsafn bókanna um Siggu Viggu.

Sýningin opnaði í fjölnotasal aðalsafns 16. mars og stendur til 11. apríl.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

05
nóv
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
05
nóv
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
05
nóv
16:00

Anime klúbbur fyrir 13-16 ára

Aðalsafn 3. hæð
07
nóv
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
07
nóv
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
09
nóv
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
10
nóv
11
nóv
16:30

Myndgreining

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað